Björn Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 10:18 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 10:18 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þessi mynd af Birni er tekin árið 1962, tveimur árum áður en hann lést.
Björn Finnbogason, Lára Kristín Guðjónsdóttir og bróðir Láru - Björn Guðjónsson frá Kirkjubóli

Björn Þórarinn Finnbogason fæddist að Dvergasteini á Seyðisfirði 7. desember 1885 og lést 4. apríl 1964. Foreldrar hans voru Rósa Eyjólfsdóttir og Finnbogi Björnsson. Þau bjuggu í Nöjsomhed fyrst um sinn. Síðan fluttust þau í húsið Uppsali. Svo flutti fjölskyldan að Norðurgarði sem var æskuheimili Björns og fjögurra bræðra hans. Bræður hans voru Ágúst Kristján, Stefán, Finnbogi og Árni Sigurjón. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.

Björn giftist Láru Guðjónsdóttur frá Kirkjubæ árið 1910. Reistu þau heimili sitt Kirkjuland og bjuggu þar í rúm 53 ár. Þau hjón eignuðust sex börn en eitt þeirra lést í æsku.

Björn hóf að stunda sjómennsku með föður sínum. Þegar Björn var 15 ára reri hann með föður sínum á áraskipinu Nýja öldin. Eigandi þess skips var Gísli J. Johnsen en Björn eignaðist síðar hluta í því. Björn var svo formaður þess skips þar til vélbátaútgerðin hófst. Gísli og Björn ásamt Birni Jónssyni frá Gerði keyptu vélbátinn Neptúnus og var Björn formaður á honum til árins 1923.

Björn stundaði ekki einungis sjósókn af kappi heldur einnig fuglaveiðar en Björn var heiðursfélagi í Bjargveiðimannafélagi Vestmannaeyja.

Björn starfaði í sóknarnefnd Landakirkju á þeim árum sem safnað var fyrir nýju orgeli og byggingu fordyris.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Björn:

Sjóra prýðin Boga Björn,
bundinn Kirkjulandi,
mund á víðis véla örn
veiðir undir sandi.

Myndir


Heimildir