Oddgeirshólar (Hólagötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Oddgeirshólar


Oddgeirshólar

Húsið Oddgeirshólar við Hólagötu 40. Friðfinnur Finnsson, kafari og kaupmaður í Eyjabúð, byggði húsið árið 1957 og færði nafnið yfir á það frá því húsi er hann bjó í lengst af og stendur nokkru ofar og sunnar, við Höfðaveg. Það hús var síðan nefnt Stuðlaberg. Á jarðhæð Oddgeirshóla var lengi vel starfrækt matvöruverslun Borg og Heimaver, en nú eru þar til húsa Tannlæknastofa Heimis og nuddstofa. Frá árinu 1973 bjó Kristmann Karlsson kaupmaður ásamt konu sinni, Kristínu Bergsdóttur á efri hæð húsins. Árið 2013 búa á efri hæð Heimir Hallgrímsson og Íris Sæmundsdóttir og synir þeirra Hallgrímur Heimisson og Kristófer Heimisson.


Heimildir

.