„Birna Jóhannesdóttir (Kirkjulundi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Birna Johannesdottir.jpg|thumb|200px|''Birna Jóhannesdóttir.]]
'''Birna Valgerður Jóhannesdóttir''' frá [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]], húsfreyja, talsímakona fæddist 10. október 1937 í  
'''Birna Valgerður Jóhannesdóttir''' frá [[Kirkjulundur|Kirkjulundi]], húsfreyja, talsímakona fæddist 10. október 1937 í  
[[Skálholt-yngra|Skálholti yngra við Urðaveg 43]] og lést 22. október 2019.<br>
[[Skálholt-yngra|Skálholti yngra við Urðaveg 43]] og lést 22. október 2019.<br>

Útgáfa síðunnar 27. maí 2022 kl. 19:27

Birna Jóhannesdóttir.

Birna Valgerður Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi, húsfreyja, talsímakona fæddist 10. október 1937 í Skálholti yngra við Urðaveg 43 og lést 22. október 2019.
Foreldrar hennar voru Jóhannes Brynjólfsson verslunarmaður, forstjóri, f. 20. september 1908 á Bólstað, d. 27. maí 1973, og kona hans Þórunn Alda Björnsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, kaupmaður, f. 20. apríl 1915 á Kirkjulandi, d. 9. desember 2012.

Börn Öldu og Jóhannesar:
1. Lára Halla Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 25. október 1935 á Kirkjulandi. Maður hennar er Páll Sigurðarson járnsmiður.
2. Birna Valgerður Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 10. október 1937 á Urðavegi 43, Skálholti. Maður hennar er Jóhann Ingi Einarsson frá Götu, pípulagningameistari, látinn.
3. Guðbjörg Ásta Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 8. apríl 1940 á Hásteinsvegi 5. Maður hennar er Adólf Bjarnason stórkaupmaður.
4. Jóhannes Sævar Brynjólfsson pípulagningameistari, slökkviliðsmaður, atvinnurekandi, umsjónarmaður, f. 15. júlí 1941 á Hásteinsvegi 5, d. 20. mars 2008. Kona hans var Ágústa Guðfinna María Ágústsdóttir sjúkraliði, látin.
5. Brynjólfur Jóhannesson sjúkrahússtarfsmaður, f. 21. júní 1953 í Sjúkrahúsinu. Kona hans er María Björg Filippusdóttir húsfreyja, sjúkrahússtarfsmaður.

Birna var með foreldrum sínum í æsku, í Skálholti-yngra, á Hásteinsvegi 5 og í Kirkjulundi.
Hún stundaði nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og húsmæðraskólanum í Brighton á Englandi.
Birna var talsímavörður hjá Landsímanum í Eyjum og síðar í Reykjavík.
Þau Ingi giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu í Kirkjulundi, en á Fjólugötu 1 við Gos 1973.
Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu þar, dvöldu á heimili fyrir aldraða, en að síðustu dvöldu þau í Hraunbúðum.
Birna lést 2019 og Jóhann Ingi 2021.

I. Maður Birnu, (11. maí 1963), var Jóhann Ingi Einarsson frá Götu, vélstjóri, pípulagningamaður, leigubílstjóri. f 29. febrúar 1940 í Nýborg, d. 17. október 2021 í Hraunbúðum.
Börn þeirra:
1. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 10. október 1963. Maður hennar er Óskar Ólafsson.
2. Erna Sigríður Jóhannsdóttir húsfreyja, sálfræðingur í Reykjavík, f. 29. maí 1965. Fyrrum maður hennar er Gunnar Hólm Ragnarsson. Maður hennar Eggert Gottskálksson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 1. nóvember 2019. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.