„Þuríður Jónsdóttir (Steinsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þuríður Jónsdóttir''' húsfreyja í Hólshúsi og á Steinsstöðum fæddist 15. mars 1823 í Fíflholtshjáleigu í V-Landeyjum og lést 9. mars 1903.<b...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 18: Lína 18:
1. Sigurður Finnsson, f. 25. mars 1845 í Hólshúsi, d. 30. mars 1845 úr ginklofa.

1. Sigurður Finnsson, f. 25. mars 1845 í Hólshúsi, d. 30. mars 1845 úr ginklofa.

2. Þorsteinn Finnsson, f. 3. júní 1846 í Hólshúsi, d. 9. júní 1846 úr ginklofa.

2. Þorsteinn Finnsson, f. 3. júní 1846 í Hólshúsi, d. 9. júní 1846 úr ginklofa.

3. Sigurður Finnsson, f. 7. desember 1847, d. 11. júní 1851 úr  „Barnaveikin“.

3. Sigurður Finnsson, f. 7. desember 1847, d. 11. júní 1851 „af Barnaveikin“.

4. Árni Finnsson, f. 22. febrúar 1851 á Steinsstöðum, d. 7. mars 1851 úr ginklofa.

4. Jóhanna Finnsdóttir, f. 10. mars 1849, d. 19. mars 1849 „ af Barnaveikleika“.

5. Sigurfinnur Finnsson, f. 30. desember 1853 á Steinsstöðum, d. 7. janúar 1854 „af barnaveiki“.

5. Árni Finnsson, f. 22. febrúar 1851 á Steinsstöðum, d. 7. mars 1851 úr ginklofa.

6. Sigurfinnur Finnsson, f. 30. desember 1853 á Steinsstöðum, d. 7. janúar 1854 „af barnaveiki“.

7. Andvana sveinbarn fætt 7. apríl 1865.

7. Andvana sveinbarn fætt 7. apríl 1865.

Fóstursynir þeirra voru

Fóstursynir þeirra voru

Útgáfa síðunnar 7. desember 2014 kl. 13:05

Þuríður Jónsdóttir húsfreyja í Hólshúsi og á Steinsstöðum fæddist 15. mars 1823 í Fíflholtshjáleigu í V-Landeyjum og lést 9. mars 1903.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson vinnumaður, f. um 1791, og barnsmóðir hans Guðbjörg Daníelsdóttir, síðar húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 28. febrúar 1801, d. 27. desember 1888.

Þuríður var sammædd:
1. Bergi Magnússyni sjómanni, f. 1837, hrapaði í Dufþekju 23. ágúst 1866.
2. Ólafi Magnússyni formanni og hagyrðingi, f. 15. apríl 1845, d. 4. október 1927.

Þuríður var með móður sinni á Vilborgarstöðum 1835, ógift vinnukona í Kornhól 1840.
Hún var húsfreyja í Hólshúsi 1845, kona Finns Árnasonar sjómanns.
Húsfreyja var hún á Steinsstöðum 1850 með Finni og barninu Sigurði 3 ára.
1855 voru hjónin þar án Sigurðar, en hann dó 1851. Fósturbarn þeirra var Þórður Hjaltason 4 ára.
1880 voru þau þar enn með fósturbörnin Þórð 27 ára og Árna Sigurðsson 8 ára. Hjá þeim var ekkjan Guðbjörg Daníelsdóttir móðir Þuríðar 78 ára, vinnukonan Jónína Guðnadóttir unnusta Þórðar Hjaltasonar. Þar var einnig Sigríður Guðmundsdóttir 51 árs lausakona, sem lfði af eignum sínum.
Finnur lést 1882 og 1890 bjó Þuríður ekkja á Steinsstöðum með Þórði fóstursyni sínum 37 ára, Jónínu unnustu hans 27 ára, Guðfinni syni þeirra, Árna fóstursyni sínum 18 ára og Elínu Pétursdóttur vinnukonu 45 ára.
1901 var Þuríður niðursetningur í Draumbæ. Hún lést 1903.

Maður Þuríðar, (9. nóvember 1843), var Finnur Árnason sjómaður og bóndi, f. 17. nóvember 1821, d. 8. mars 1882.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Finnsson, f. 25. mars 1845 í Hólshúsi, d. 30. mars 1845 úr ginklofa.
2. Þorsteinn Finnsson, f. 3. júní 1846 í Hólshúsi, d. 9. júní 1846 úr ginklofa.
3. Sigurður Finnsson, f. 7. desember 1847, d. 11. júní 1851 „af Barnaveikin“.
4. Jóhanna Finnsdóttir, f. 10. mars 1849, d. 19. mars 1849 „ af Barnaveikleika“.
5. Árni Finnsson, f. 22. febrúar 1851 á Steinsstöðum, d. 7. mars 1851 úr ginklofa.
6. Sigurfinnur Finnsson, f. 30. desember 1853 á Steinsstöðum, d. 7. janúar 1854 „af barnaveiki“.
7. Andvana sveinbarn fætt 7. apríl 1865.
Fóstursynir þeirra voru
8. Þórður Hjaltason, f. 19. mars 1852, hrapaði til bana úr Dalfjalli 25. ágúst 1897.
9. Árni Sigurðsson, f. 24. nóvember 1871, síðar í Dal, en fluttist síðast til Vesturheims.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Íslendingabók.is.
• Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.