Þórður Hjaltason (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Hjaltason fóstursonur og vinnumaður á Steinsstöðum fæddist 19. mars 1852 í Skarðshjáleigu í Mýrdal og hrapaði úr vestanverðu Dalfjalli 25. ágúst 1897.
Foreldrar hans voru Hjalti Hjaltason bóndi, lengst í Skarðshjáleigu, f. 1814, d. 25. júlí 1859, og kona hans Guðfinna Árnadóttir húsfreyja, f. 16. september 1818, d. 28. júní 1864.

Föðurmóðir Þórðar var Gyðríður Sveinsdóttir á Vesturhúsum, f. 1785, d. 3. janúar 1859.
Frændgarður Þórðar í Eyjum, börn Gyðríðar, voru:
1. Sveinn Hjaltason bóndi og hafnsögumaður á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879.
2. Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818.
3. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820.
4. Eyjólfur Hjaltason á Löndum, sjávarbóndi 1870, bókbindari í Kornhól, f. 19. desember 1821.
5. Björn Hjaltason vinnumaður á Steinsstöðum, f. 10. júní 1823, drukknaði 26. mars 1842.
Synir Gyðríðar og Þorkels Jónssonar síðari manns hennar:
6. Jón Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, tómthúsmaður í Grímshjalli, f. 18. september 1826.
7. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.

Þórður var með foreldrum sínum í Skarðshjáleigu til ársins 1854/5.
Hann var tökubarn á Steinsstöðum 1855 og 1860 hjá Finni Árnasyni bónda og Þuríði Jónsdóttur húsfreyju, skráður fóstursonur þeirra þar 1870, vinnumaður þar 1880, þá ókvæntur. Þar voru þá Jónína Guðnadóttir vinnukona og Guðfinnur tveggja ára sonur hennar og Þórðar.
Þórður hrapaði til bana úr vestanverðu Dalfjalli 25. ágúst 1897.

Barnsmóðir Þórðar var Jónína Guðnadóttir, f. 14. maí 1863, d. 18. júní 1830.
Barn þeirra var
1. Guðfinnur Þórðarson í Haga, f. 31. júlí 1888, d. 28. ágúst 1965.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.