„Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir''' húsfreyja í Skálholti við Landagötu fæddist 18. október 1903 á Hlíðarenda á Djúpavogi og lést 6. júlí 1970....)
 
m (Verndaði „Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 15. desember 2018 kl. 17:48

Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir húsfreyja í Skálholti við Landagötu fæddist 18. október 1903 á Hlíðarenda á Djúpavogi og lést 6. júlí 1970.
Foreldrar hennar voru Friðbjörg Einarsdóttir verkakona, húskona í Gamla vertshúsi á Eskifirði 1910, síðar á Brekastíg 24 í Eyjum, f. 18. september 1865 á Djúpavogi, d. 16. desember 1936, og Þorbjörn Eiríksson vinnumaður, síðar bóndi í Hátúni í Skriðdal og Borgargerði í Fáskrúðsfirði, f. 25. júní 1884, d. 6. janúar 1957.

Hálfbróðir Þóru, sammæddur, var
1. Ágúst Ólafur Ólafsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 14. ágúst 1899, d. 14. maí 1976.

Þóra var með móður sinni í Gamla vertshúsi á Eskifirði 1910, vinnukona í íbúðarhúsi H/F hinnar sam. ísl. verslunar í Eskifirði 1920. Hún fluttist til Reykjavíkur og þaðan til Eyja 1926.
Þau Hjörleifur giftu sig 1926, eignuðust fjögur börn, bjuggu í Skálholti við Landagötu 1927 og síðar.
Þóra lést 1970 og Hjörleifur 1997.

I. Maður Þóru Arnheiðar, (1. október 1926 í Eyjum), var Hjörleifur Sveinsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, skipstjóralærður sjómaður, netamaður, f. 23. janúar 1901, d. 29. september 1997.
Börn Þóru og Hjörleifs:
1. Sveinn Hjörleifsson skipstjóri og útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927 í Skálholti, d. 4. janúar 2004.
2. Anna Hjörleifsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 31. mars 1929 í Skálholti, d. 21. febrúar 2018.
3. Friðrik Ágúst Hjörleifsson sjómaður, útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 16. nóvember 1930 í Skálholti, d. 7. október 2014.
4. Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1932 í Skálholti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.