Friðbjörg Einarsdóttir (Brekastíg 24)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Friðbjörg Einarsdóttir.

Friðbjörg Einarsdóttir húsfreyja, verkakona á Djúpavogi, síðar í dvöl hjá Ágústi syni sínum á Brekastíg 24 fæddist 18. september 1865 og lést 16. desember 1936.
Foreldrar hennar voru Einar Magnússon bóndi í Stekkahjáleigu í Hálssókn í Hamarsfirði, f. 1817, d. 29. apríl 1871, og kona hans Ragnheiður Guðmundsdóttir húsfreyja, yfirsetukona, f. 7. nóvember 1831, d. 19. ágúst 1914.

Faðir Friðbjargar lést, er hún var á sjötta árinu. Hún fylgdi móður sinni, var léttastúlka á Þvottá í Álftafirði 1880 og var þar með vinnukonunni og ekkjunni móður sinni. Hún var leigjandi hjá Sigurbjörgu systur sinni i Borgargarði í Djúpavogi 1901 með Ágúst Ólaf með sér.
Þá var hún húskona í Gamla vertshúsi á Eskifirði 1910 með Ágústi Ólafi og Þóru Arnheiði, og húsfreyja í Sænskahúsi á Eskifirði 1920 og þar var Ágúst Ólafur húsbóndi.
Friðbjörg fluttist til Ágústs Ólafs á Brekastíg 33 1930 og fluttist með fjölskyldu hans að Brekastíg 24.
Hún lést 1936.

I. Barnsfaðir Friðbjargar var Jóhann Friðrik Sigurðsson sjómaður, f. 23. febrúar 1874, d. 7. desember 1929.
Barn þeirra:
1. Sigurður Jóhannsson útgerðarmaður og skipstjóri á Eskifirði, f. 23. desember 1891 í Kambshjáleigu í S.-Múl., d. 5. nóvember 1946, fórst með Borgarey við Hornafjörð.
Hann var m.a. faðir Einars Braga Sigurðssonar kennara í Eyjum, skálds, f. 7. apríl 1921, d. 26. mars 2005.

II. Barnsfaðir Friðbjargar var Ólafur Finnbogason bóndi í Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði, síðar verkamaður á Búðum þar, f. 5. ágúst 1861, d. 24. maí 1935.
Barn þeirra var
2. Ágúst Ólafur Ólafsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 14. ágúst 1899, d. 14. maí 1976 við Hafnarfjarðarhöfn.

III. Barnsfaðir hennar var Þorbjörn Eiríksson vinnumaður, síðar bóndi í Hátúni í Skriðdal og Borgargerði í Fáskrúðsfirði, f. 25. júní 1884, d. 6. janúar 1957.
Barn þeirra:
3. Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir húsfreyja í Skálholti við Landagötu, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.