„Ólafur Pétur Sveinsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ólafur Pétur Sveinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip

Lína 5: Lína 5:
Börn Aðalheiðar Maggýjar og Sveins:

Börn Aðalheiðar Maggýjar og Sveins:

1. [[Þóra Sigríður Sveinsdóttir]] húsfreyja, f. 27. september 1948. Maður hennar [[Henry Ágúst Erlendsson]], látinn.

1. [[Þóra Sigríður Sveinsdóttir]] húsfreyja, f. 27. september 1948. Maður hennar [[Henry Ágúst Erlendsson]], látinn.

2. [[Þórey Sveinsdóttir]] húsfreyja, f. 1. september 1951. Maður hennar [[Einar Sveinbjörnsson]], látinn.

2. [[Þórey Sveinsdóttir]] húsfreyja, f. 1. september 1951. Maður hennar [[Einar Sveinbjörnsson (tæknifræðingur)|Einar Sveinbjörnsson]], látinn.

3. [[Hjörleifur Sveinsson (yngri)|Hjörleifur Sveinsson]] yngri, sjómaður, f. 27. desember 1954, d. 18. ágúst 2019. Fyrri konur hans [[Sigríður Lovísa Sigurðardóttir]] og [[Dagný Björt Konráðsdóttir]].

3. [[Hjörleifur Sveinsson (yngri)|Hjörleifur Sveinsson]] yngri, sjómaður, f. 27. desember 1954, d. 18. ágúst 2019. Fyrri konur hans [[Sigríður Lovísa Sigurðardóttir]] og [[Dagný Björt Konráðsdóttir]].

4. [[Ólafur Pétur Sveinsson]] verkamaður, f. 30. maí 1958, d. 12. febrúar 2004, ókv.

4. [[Ólafur Pétur Sveinsson]] verkamaður, f. 30. maí 1958, d. 12. febrúar 2004, ókv.

Núverandi breyting frá og með 22. nóvember 2023 kl. 21:41

Ólafur Pétur Sveinsson.

Ólafur Pétur Sveinsson verkamaður fæddist 30. maí 1958 og lést 12. febrúar 2004.
Foreldrar hans voru Sveinn Hjörleifsson frá Skálholti, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004, og kona hans Aðalheiður Maggý Pétursdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, f. 27. mars 1930, d. 26. september 2007.

Börn Aðalheiðar Maggýjar og Sveins:
1. Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1948. Maður hennar Henry Ágúst Erlendsson, látinn.
2. Þórey Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1951. Maður hennar Einar Sveinbjörnsson, látinn.
3. Hjörleifur Sveinsson yngri, sjómaður, f. 27. desember 1954, d. 18. ágúst 2019. Fyrri konur hans Sigríður Lovísa Sigurðardóttir og Dagný Björt Konráðsdóttir.
4. Ólafur Pétur Sveinsson verkamaður, f. 30. maí 1958, d. 12. febrúar 2004, ókv.
5. Kristbjörg Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1965. Maður hennar Pétur Fannar Hreinsson.

Ólafur Pétur missti lífsmörk við fæðingu sína og var vakinn til lífsins. Hann var með foreldrum sínum allan aldur sinn, en faðir hans lést rúmum mánuði fyrr en Ólafur Pétur.
Hann gekk í Barnaskólann og síðan um skeið í Öskjuhlíðarskólann í Reykjavík.
Hann vann verkamannavinnu, fyrst hjá Vestmannaeyjabæ, en síðan í 15 ár við fiskiðnað hjá Vinnslustöðinni.
Ólafur Pétur hafði mikinn áhuga á ljósmyndun og öllu því sem viðkom þeirri list.
Um allangt skeið vann hann með föður sínum við kvikfé hans, bæði sauðfé og hesta.
Hann lést 2004, fáum dögum eftir flutning í eigin íbúð.
Ólafur Pétur var ókvæntur og barnlaus.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.