Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. apríl 2015 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. apríl 2015 kl. 15:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Rósinkranz Eiríksson sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.
Foreldrar hans voru Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1811, d. 14. október 1883, og maður hennar Eiríkur Hansson sjávarbóndi, f. 3. ágúst 1815, drukknaði 26. febrúar 1869.

Rósinkranz var með foreldrum sínum frá fæðingu. Hann var vinnumaður hjá Magnúsi Oddssyni á Kirkjubæ 1866, var skipverji á Blíð og fórst við Bjarnarey 1869, ásamt föður sínum, Jóni bróður sínum, Jóni lóðs mági sínum, Guðna verðandi mági sínum og fleiri í Útilegunni miklu við Bjarnarey 1869.
Rósinkranz var ókvæntur og barnlaus.
Þeir, sem fórust við Bjarnarey voru:
1. Jón Jónsson lóðs á Vilborgarstöðum, formaður. Kona hans var Veigalín Eiríksdóttir frá Gjábakka.
2. Eiríkur Hansson bóndi á Gjábakka.
3. Jón Eiríksson, sonur Eiríks Hanssonar.
4. Rósinkranz Eiríksson.
5. Guðni Guðmundsson smiður í Fagurlyst, verðandi tengdasonur Eiríks Hanssonar, sambýlismaður Málfríðar Eiríksdóttur.
6. Snjólfur Þorsteinsson í Görðum við Kirkjubæ unnusti Þorgerðar Gísladóttur.
7. Bjarni Magnússon bóndi á Kirkjubæ.
8. Jósep Sveinsson sjómaður í Háagarði.
9. Jón Guðmundsson frá Núpakoti undir Eyjafjöllum, óskilgetinn sonur Margrétar Halldórsdóttur, síðari konu Jóns Þorgeirssonar bónda á Oddsstöðum.


Heimildir