Rósinkranz Eiríksson (Gjábakka)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Rósinkranz Eiríksson sjómaður frá Gjábakka fæddist 10. september 1850 og drukknaði 26. febrúar 1869.
Foreldrar hans voru Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1811, d. 14. október 1883, og maður hennar Eiríkur Hansson sjávarbóndi, f. 3. ágúst 1815, drukknaði 26. febrúar 1869.

Rósinkranz var með foreldrum sínum frá fæðingu. Hann var vinnumaður hjá Magnúsi Oddssyni á Kirkjubæ 1866, var skipverji á Blíð og fórst við Bjarnarey 1869, ásamt föður sínum, Jóni bróður sínum, Jóni lóðs mági sínum, Guðna verðandi mági sínum og fleiri í Útilegunni miklu við Bjarnarey 1869.
Rósinkranz var ókvæntur og barnlaus.
Þeir, sem fórust við Bjarnarey voru:
1. Jón Jónsson lóðs á Vilborgarstöðum, formaður. Kona hans var Veigalín Eiríksdóttir frá Gjábakka.
2. Eiríkur Hansson bóndi á Gjábakka.
3. Jón Eiríksson, sonur Eiríks Hanssonar.
4. Rósinkranz Eiríksson.
5. Guðni Guðmundsson smiður í Fagurlyst, verðandi tengdasonur Eiríks Hanssonar, sambýlismaður Málfríðar Eiríksdóttur.
6. Snjólfur Þorsteinsson í Görðum við Kirkjubæ unnusti Þorgerðar Gísladóttur.
7. Bjarni Magnússon bóndi á Kirkjubæ.
8. Jósep Sveinsson sjómaður í Háagarði.
9. Jón Guðmundsson frá Núpakoti undir Eyjafjöllum, óskilgetinn sonur Margrétar Halldórsdóttur, síðari konu Jóns Þorgeirssonar bónda á Oddsstöðum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.