Guðmundur Guðmundsson eldri (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2014 kl. 17:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðmundur Guðmundsson''' eldri, bóndi á Kirkjubæ, fæddist 1753 og lést 28. september 1825.<br> Foreldrar hans voru sr. [[Guðmundur Högnason (prestur)|Guð...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðmundsson eldri, bóndi á Kirkjubæ, fæddist 1753 og lést 28. september 1825.
Foreldrar hans voru sr. Guðmundur Högnason prestur á Kirkjubæ, f. 1713, d. 6. febrúar 1795, og kona hans Guðrún Hallsdóttir húsfreyja, f. 1725, d. 16. desember 1785.

Börn sr. Guðmundar og Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1749, d. 12. febrúar 1817. Maki hennar er ókunnur.
2. Guðmundur Guðmundsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1753, d. 28. september 1825. Kona hans var Þuríður Einarsdóttir
3. Anna Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1757, d. 17. apríl 1849, kona sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar.
4. Rakel Guðmundsdóttir húsfreyja í Gvendarhúsi, f. 1758, d. 20. febrúar 1793, kona Bergsteins Guðmundssonar.
5. Árni Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1762, d. 21. apríl 1819.

Guðmundur var bóndi á Kirkjubæ 1801 og var þar með Þuríði konu sinni. Hjá þeim voru Sólrún Bjarnadóttir og Ólafur Sigvaldason vinnufólk.

Kona Guðmundar var Þuríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 1745, d. 6. apríl 1801.
Barneignir þeirra eru ókunnar. (Ath. að fæðingaskrá í Eyjum er til frá árinu 1786, en dánarskrá með eyðum frá 1785)


Heimildir