Ingveldur Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 18:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingveldur Guðmundsdóttir''' gift vinnukona á Kirkjubæ fæddist 11. október 1791 og lést 30. júní 1841. <br> Faðir hennar var [[Guðmundur Ólafsson (Kirkju...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingveldur Guðmundsdóttir gift vinnukona á Kirkjubæ fæddist 11. október 1791 og lést 30. júní 1841.
Faðir hennar var Guðmundur bóndi á Kanastöðum, Bryggjum og Bakkahjáleigu þar, síðast í Eyjum, f. 1765, d. 3. febrúar 1820 á Kirkjubæ, Ólafsson bónda í Hallgeirsey, f. 1727, Ólafssonar bónda í Eystri-Klasbarða í V-Landeyjum, f. 1695, Snorrasonar, og konu Ólafs Snorrasonar, Steinunnar húsfreyju, f. 1687, Bjarnhéðinsdóttur.
Móðir Guðmundar og kona Ólafs í Hallgeirsey var Ingunn húsfreyja, f. 1733, Gunnarsdóttir bónda í Ey í V-Landeyjum, f. 1697, d. 27. október 1768, Helgasonar bónda í Eystra-Fíflholti þar, f. 1662, Erlendssonar, og konu Helga, Ingunnar húsfreyju, f. 1662, Gunnarsdóttur.

Móðir Margrétar og fyrri kona Guðmundar á Kanastöðum var Ingibjörg húsfreyja, f. 1763 í Eyjum, d. 19. maí 1810, Jónsdóttir.

Ingveldur var systir Ólafs Guðmundssonar smiðs og bónda á Kirkjubæ, f. 17. janúar 1798, d. 14. júlí 1869, og Margrétar Guðmundsdóttur eldri í Dölum, f. 1787, d. 14. nóvember 1848 og Guðrúnar Guðmundsdóttur húsfreyju í Steinshúsi.

Ingveldur var hjá foreldrum sínum á Bryggjum 1801, ógift vinnukona í Kornhól 1816, vinnukona í Dölum 1835 með Guðmund son sinn eins árs hjá sér.
Hún var gift kona hjá ekklinum Ólafi bróður sínum á Kirkjubæ 1840.
Við andlát var hún sögð gift kona frá Görðum.

I. Maður Ingveldar, (28. október 1832), var Ólafur Björnsson vinnumaður, f. 26. febrúar 1808, d. 26. febrúar 1848.
Barn þeirra hér:
1. Guðmundur Ólafsson, f. 4. mars 1834, d. 26. desember 1847. Hann var með móður sinni í Dölum 1835, 6 ára fósturbarn hjá Ragnhildi Ingimundardóttur á Búastöðum 1840, 11 ára niðursetningur í Nöjsomhed 1845, 13 ára niðurseningur á Gjábakka við andlát.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.