Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Gullskreyttur sem general
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Gullskreyttur sem general
- Eftir Högna Sigurðsson í Vatnsdal
- Gullskreyttur sem general,
- góðkunnur frá Mandal.
- Er í leynum allsstaðar,
- en alltaf laus við skandal.
- Þegar bófar brjótast inn,
- bæði á nóttu og degi,
- yfirþjóninn ávallt finn
- uppi á Kirkjuvegi.
- Mikið hefir maður reynt
- meðal vor á jörðu,
- ekið bíl og blásið horn
- og braski lent í hörðu.
- Munnhörpur og mandólín
- mönnum vildi selja.
- Það er ekki heiglum hent
- hörmung hans að telja.
- Einar Sigurðsson
- (Var að byggja neðanjarðaríshúsið).
- Einar Sigurðsson
- Maður nokkur byggði bæ
- bjargföstum á steini
- og að ári aðra hæð
- og undirgang í leyni.
- Nú á prjónum hefir haft
- húsinu að skjóta
- upp á háan Heimaklett,
- hárunum til bóta.
- Baldur Ólafsson
- (Var þá með umboð fyrir Egilsöl og Bláa borðann).
- Baldur Ólafsson
- Maður nokkur býr á Borg
- býsna toginleitur,
- því að norskum eplum af
- enginn verður feitur.
- Líka reyndi Egilsöl,
- ekkert bættist hagur.
- Blái borðinn bestur er,
- en Baldur er jafn magur.
- Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarstjóri
- (þá í deilum við Gróu).
- Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarstjóri
- Borgarstjórans ljúfu lund
- létt er mjög að særa.
- Gróa hefir gert það nóg,
- grimm var mjög sú skæra.
- Frúin vildi ei fara burt
- fyrir Kirkjuvegi.
- Veslings Gunnar bað og bauð,
- en bænir tjáðu eigi.
- Óli nokkur arkitekt
- alveg hætti að smíða.
- Það er ekki undarlegt,
- þó eitthvað yrði að bíða.
- Núna selur náttpotta,
- netagarn og tjöru.
- Það kvað þykja feikna fínt
- að fást við þessa vöru.
- Kárason er kvensamur,
- kætir ungar meyjar.
- Vinnukonur veiðir hann
- víða um þessar eyjar.
- Yngismeyjar afgreiðir
- með undirkjóla og sokka.
- Ræl og tangó virkta vel
- vinurinn kann að skokka.
- Siggi Gutt er gáfaður
- og gefinn fyrir móðinn,
- unni funkis, þýskri þjóð,
- Þorsteins kunni ljóðin.
- En kapítal og krónujakt
- kvað hann djúpt í fallinn.
- Klárast þetta kom í ljós,
- er keypt hann Thomsens hjallinn.
- Leifur málar hænsnahús
- höfðingjanna í bænum.
- Fimur er í fjallgöngum.
- (hér vantar ljóðlínu )
- Ekur stiga út um bæ
- einhver var að hlæja.
- Sá hlær best sem síðast hlær,
- en vi estas gæja.
- Siggi Jónsson (orðtak: eins og hundarnir á hinum bæjunum).
- Góðar vörur fást í Fram,
- fangalína og krani.
- Siggi Jóns er sagður þar
- sífellt vera á spani,
- sem hundarnir á hinum bæ
- í hverju máli geltir,
- og sannfæringin síviljug
- síðasta manninn eltir.
- Skynji hani hanagal.
- hann fer líka að gala
- eins vill Siggi í umræðum
- í öllum málum tala.
- Viðlag:
- Það skeður enn, það skrafa menn,
- það skeður alla tíma,
- það skeður nær það skeður fjær,
- það skeður líka í síma.
- það skeður æ um sveit og sæ,
- það skeður líka á fundum,
- það skeður nú og skilur þú,
- það skeður öllum stundum.
- Jóhannes Long Jóhannesson
- Strákur nokkur austan að
- öllu góðu kunnur, :
- umboðsmaður útsmoginn,
- andans mesti brunnur.
- Áður seldi Akra smjör,
- öl og kaffibæti.
- Gefjun hefir græjað hann
- gott í kaupmanns sæti.
- Sjóveituna situr við
- sæll í öðrum heimi.
- Óttalegur andafans
- oft er þar á sveimi.
- Kjartan unir kátur þar
- í kuldahríð og gjósti,
- því átján pakka af opelskro
- andar sendu í pósti.
- Guðmundur skósmiður Jónsson
- (Var þá nýrekinn úr stjórn Kaupfélags Alþýðu.
- Guðmundur er góðmenni,
- glaður öllum stundum.
- Alltaf sést hans blíða bros,
- en best á kratafundum.
- Kaupfélagi kratanna
- kom hann upp með Jónum.
- Núna hefir hugur hans
- hallast mest að skónum.
- Óskar Bjarnasen
- (Vantaði alltaf í nefið)
- Alltaf hljóma orðin söm
- á okkar skemmtifundum,
- þegar blíður Bjarnasen
- byrjar ræður stundum.
- Lokar augum, hóstar hátt,
- hábölvað er kvefið.
- Geturðu ekki, greyið mitt,
- gefið mér í nefið.
- Gísli rafvirki,
- (kallaður Pexikon,
- fékkst við loftnetauppsetningu).
- Uppi á strompum allsstaðar,
- einn í ströngu jobbi.
- Lýður horfir hugfanginn,
- heldur að þar sé Tobbi.
- Karlar hafa kvartað mjög,
- kjöt úr strompum týnist.
- Poka hefir Pexikon
- og plokkar þegar sýnist.