Golfklúbbur Vestmannaeyja
Tildrög þess að hafið var að leika golf í Vestmannaeyjum má rekja til þess er Magnús Magnússon, skipstjóri frá Boston, USA, var á ferð í Eyjum sumarið 1937. Þá hafði hann kennt nokkrum mönnum undirstöðuatriðin í golfíþróttinni og reglur leiksins. Í framhaldinu ákváðu nokkrir af þeim, sem fallið höfðu fyrir íþróttinni, þeir Þórhallur Gunnlaugsson, Axel Halldórsson, Ólafur Halldórsson, Einar Guttormsson, Ágúst Bjarnason og Georg Gíslason, ásamt fleirum að boða til stofnfundar Golfklúbbs Vestmannaeyja.
Fundurinn var haldinn þann 4. des. 1938 og voru 20 mættir. Í bráðabirgðastjórn og laganefnd voru kosnir Þórhallur Gunnlaugsson, formaður, Georg Gíslason, ritari og Ólafur Halldórsson, gjaldkeri. Framhaldsstofnfundur var haldinn 11. desember og voru þessir sömu menn kosnir í fyrstu stjórnina ásamt meðstjórnendunum Einari Guttormssyni og Viggó Björnssyni.
Stofnendur Golfklúbbs Vestmannaeyja:
Stofendur Golfklúbbs Vestmannaeyja voru:
Formenn Golfklúbbs Vestmannaeyja
- Þórhallur Gunnlaugsson 1938-45
- Georg Gíslason 1946, 1950-51
- Axel Halldórsson 1947-49
- Lárus Ársælsson 1952-64
- Sverrir Einarsson 1965-66 og 1968-71
- Gunnlaugur Axelsson 1972-73 og 1977
- Marteinn Guðjónsson 1974 og 1980
- Guðmundur Þórarinsson 1975-76
- Ragnar Guðmundsson 1979-79 og 1982-84
- Sighvatur Arnarsson 1981
- Bergur M. Sigmundsson 1985-
- Elsa Valgeirsdóttir
- Helgi Bragason 2007