Guðmar Weihe Stefánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. febrúar 2025 kl. 15:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. febrúar 2025 kl. 15:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðmar Weihe Stefánsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmar Weihe Stefánsson, sjómaður í 52 ár, vann síðan hjá verktaka, fæddist 8. október 1952 í Akurey.
Foreldrar hans voru Stefán Ágúst Guðmundsson frá Vorsabæjarhjáleigu í Flóa, verkamaður, f. 1. ágúst 1919, d. 22. júní 2000, og kona hans Sigríður Elísabet Jóhannsdóttir Weihe Guðmundsson frá Porkere í Suðurey í Færeyjum, húsfreyja, f. 9. janúar 1921, d. 1. apríl 2016.

Barn Sigríðar og Sigurðar Breiðfjörð Ólafssonar:
1. Johan Edvin Weihe Stefánsson, f. 26. maí 1945 í Vorsabæjarhjáleigu. Fyrrum kona hans Gunnhildur Elsa Hrólfsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Steinunn Eggertsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Hjördís Guðmundsdóttir.
Börn Sigríðar og Stefáns:
2. Guðmundur Weihe Stefánsson, f. 3. desember 1946 í Framnesi. Kona hans Ellý Elíasdóttir.
3. Sigurður Weihe Stefánsson, f. 13. maí 1949 á Skjaldbreið. Kona hans Ásta Traustadóttir.
4. Guðmar Weihe Stefánsson, f. 8. október 1952 í Akurey. Fyrri sambúðarkona hans Erna Margrét Laugdal Ottósdóttir. Kona hans Ragnhildur Ragnarsdóttir.
5. Elías Weihe Stefánsson, f. 19. desember 1953 í Akurey. Kona hans Hjördís Guðbjartsdóttir.
6. Katrín Stefánsdóttir, f. 28. júní 1963 á Sjúkrahúsinu. Maður hennar Steingrímur Svavarsson.

Þau Erna giftu sig eignuðust eitt barn, bjuggu við Hásteinsveg 34. Þau skildu.
Þau Ragnhildur giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa við Skólaveg 12.

I. Fyrrum kona Guðmars var Erna Margrét Laugdal Ottósdóttir, húsfreyja, f. 1. apríl 1954, d. 20. apríl 2022.
Barn þeirra:
1. Sísí Bender, f. 14. ágúst 1972 í Eyjum.

II. Kona Guðmars er Ragnhildur Ragnarsdóttir, frá Ólafsfirði, húsfreyja, f. 21. september 1954. Foreldrar hennar Ragnar Ingimarsson, f. 6. júlí 1917, d. 14. apríl 1992, og Kristín Margrét Pálsdóttir, f. 5. júlí 1924, d. 12. júlí 2014.
Barn þeirra:
2. Ingimar Ágúst Guðmarsson, f. 31. mars 1980, d. 6. janúar 2021.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.