Sigríður Elísabet Jóhannsdóttir Weihe Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigríður Elísabet Guðmundsson.

Sigrid Elisabeth Johanson Weihe Guðmundsson frá Porkere í Suðurey í Færeyjum, húsfreyja, fiskverkakona fæddist 9. janúar 1921 og lést 1. apríl 2016.
Faðir hennar var Johan Weihe sjómaður.

Sigríður ólst upp í Færeyjum, leitaði til Íslands í atvinnuskini, vann um skeið á Kleppsspítala og í Vorsabæjarhjáleigu.
Hún eignaðist barn með Sigurði 1945.
Þau Stefán giftu sig 1947, eignuðust 5 börn og Stefán varð kjörfaðir Jóhanns barns hennar. Þau dvöldu um skeið í Vorsabæjarhjáleigu í Flóa, bjuggu í Framnesi við Vesturveg 3B við fæðingu Guðmundar 1946, á Skjaldbreið við Urðaveg 36 við fæðingu Sigurðar 1949, í Akurey við fæðingu Guðmars og Elíasar 1952 og 1953, við Brekastíg 37 1963 við fæðingu Katrínar og síðast við Sólhlíð 19a.
Stefán lést á árinu 2000 og Sigríður 2016.

I. Barnsfaðir Sigríðar var Sigurður Breiðfjörð Ólafsson, þá í Vorsabæjarhjáleigu, f. 27. júlí 1924, d. 23. febrúar 1985.
Barn þeirra, síðar kjörbarn Stefáns manns hennar:
1. Johan Edvin Weihe Stefánsson, f. 26. maí 1945 í Vorsabæjarhjáleigu. Fyrrum kona hans Gunnhildur Elsa Hrólfsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Steinunn Eggertsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Hjördís Guðmundsdóttir.

II. Maður Sigríðar, (26. maí 1946), var Stefán Ágúst Guðmundsson verkamaður, f. 1. ágúst 1919, d. 22. júní 2000.
Börn Sigríðar og Stefáns:
2. Guðmundur Weihe Stefánsson, f. 3. desember 1946 í Framnesi. Kona hans Ellý Elíasdóttir.
3. Sigurður Weihe Stefánsson, f. 13. maí 1949 á Skjaldbreið. Kona hans Ásta Traustadóttir.
4. Guðmar Weihe Stefánsson, f. 8. október 1952 í Akurey. Fyrri kona hans Erna Margrét Laugdal Ottósdóttir. Kona hans Ragnhildur Ragnarsdóttir.
5. Elías Weihe Stefánsson, f. 19. desember 1953 í Akurey. Kona hans Hjördís Guðbjartsdóttir.
6. Katrín Stefánsdóttir, f. 28. júní 1963 á Sjúkrahúsinu. Maður hennar Steingrímur Svavarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.