Þórður Þórðarson (Sléttabóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 17:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 17:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þórður
Þórður Þórðarson, Sléttabóli, og fjölskylda.
Þórður Þórðarson með foreldrum og systkinum á Sléttabóli í Hörglandshreppi. (Blik 1963)

Þórður Þórðarson, Sléttabóli, fæddist í Hörglandshreppi þann 12. janúar 1893. Þórður fór fyrst til Vestmannaeyja árið 1912 til þess að stunda sjóinn. Þórður byrjaði á Unni II með Þorsteinn Jónsson í Laufási og var með honum fram til ársins 1920. Árið 1921 hóf hann formennsku með Mínervu og eftir það var hann með ýmsa báta. Árið 1941 hóf hann formennsku á Ófeigi I en fórst á honum 1. mars 1942 með allri áhöfn í suðaustan ofviðri norðvestur af Eyjum. Þórður eignaðist barn með Sigríði Gunnarsdóttur, síðar húsfreyju á Seyðisfirði, f. 17. desember 1893, d. 1. janúar 1955.
Barn þeirra:
Kristján Þórðarson bóndi á Bæjarstæði í Seyðisfirði, f. 22. maí 1917, d. 20. júlí 1993.
Eiginkona Þórðar var Guðfinna Stefánsdóttir. Börn þeirra voru Sigríður, Ása Magnea, Bára, Eyþór, Stefanía og Ási Markús.

Sjá einnig Blik 1963/Markverð mynd

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

  • Þorgils Jónasson sagnfræðingur.