Ingi Steinn Ólafsson
Ingi Steinn Ólafsson frá Boðaslóð 3, sjómaður, vélstjóri, fiskimatsmaður fæddist 22. apríl 1942 á Skjaldbreið við Urðaveg 36.
Foreldrar hans voru Ólafur Vestmann sjómaður, f. 25. desember 1906 á Strönd við Miðstræti 9a, d. 15. apríl 1970, og kona hans Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1905 í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
Barn Þorbjargar:
1. Rósa Guðmunda Snorradóttir húsfreyja, f. 3. september 1927 í Drangey við Kirkjuveg 84, d. 24. júlí 2015. Maður hennar, (skildu), var Hilmar Rósmundsson.
Börn Þorbjargar og Ólafs:
1. Theodór Snorri Ólafsson, Bessahrauni 6, sjómaður, vélstjóri, f. 14. maí 1933 í Langa-Hvammi. Kona hans er Margrét Eirikka Sigurbjörnsdóttir.
2. Sigurveig Þórey Ólafsdóttir, f. 30. mars 1935 í Langa-Hvammi, d. 17. júlí 1935.
3. Snorri Sigurvin Ólafsson sjómaður, síðar í Hveragerði, f. 10. ágúst 1938 á Kalmanstjörn. Fyrri kona hans var Svala Sigríður Auðbjörnsdóttir, d. 5. júlí 1991. Síðari kona er Elínborg Einarsdóttir.
4. Ingi Steinn Ólafsson, f. 22. apríl 1942 á Skjaldbreið. Kona hans Guðný Stefanía Karlsdóttir.
5. Ellen Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, f. 15. desember 1943 á Boðaslóð 3. Maður hennar er Guðmundur Karl Guðfinnsson.
6. Þór Guðlaugur Vestmann Ólafsson sjómaður, f. 29. október 1947 á Boðaslóð 3. Kona hans er Margrét Sigurbergsdóttir.
Ingi Steinn var með foreldrum sínum.
Hann varð ungur sjómaður, vélstjóri.
Síðar var hann verkstjóri og fiskimatsmaður í Matstöðinni, þá stofnaði hann fyrirtækið Tinnu með öðrum og annaðist saltfiskverkun. Síðan var hann verkstjóri á Fiskmarkaðnum í Eyjum.
Þau Guðný Stefanía giftu sig 1965, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu í Stíghúsi við Njarðarstíg 5, síðan í Breiðavík við Kirkjuveg 82, þá á Sólbergi við Brekastíg 3, en síðast á Foldahrauni 39. Þau bjuggu á Húsavík 1973-1974.
Guðný Stefanía dvaldi að síðustu í Hraunbúðum. Hún lést 2022.
Ingi Steinn býr á Kleifahrauni 2.
I. Kona Inga Steins, (30. apríl 1965), var Guðný Stefanía Karlsdóttir frá Höfða á Húsavík, húsfreyja, f. þar 30. apríl 1945, d. 8. mars 2022 í Hraunbúðum .
Börn þeirra:
1. Sigfríður Björg Ingadóttir húsfreyja, f. 24. desember 1967. Maður hennar Ómar Stefánsson vélgæslumaður.
2. Árni Karl Ingason sjómaður, starfsmaður á veitingahúsi, f. 27. nóvember 1970.
3. Friðþór Vestmann Ingason þroskaþjólfi, sjúkraliði, f. 13. janúar 1979. Kona hans Ragnheiður Jónsdóttir þroskaþjálfi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Friðþór.
- Heimaslóð.is.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 19. mars 2022. Minning Guðnýjar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.