Ritverk Árna Árnasonar/Jón Ísak Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. nóvember 2022 kl. 13:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. nóvember 2022 kl. 13:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Jón Ísak Sigurðsson.

Jón Ísak Sigurðsson hafnsögumaður á Látrum fæddist 7. nóvember 1911 og lést 28. júní 2000.
Foreldrar hans voru Sigurður Björnsson bátasmiður á Rauðafelli, síðar í Merkisteini, f. 29. maí 1886 í Árnatóft á Stokkseyri, d. 9. júní 1928, og kona hans Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Rauðafelli, síðar í Merkisteini, f. 10. apríl 1886, d. 19. september 1972.

Kona Jóns Ísaks var Klara Friðriksdóttir húsfreyja á Látrum, f. 26. september 1916, d. 30. desember 2008.
Börn Jóns Ísaks og Klöru:
Friðrik, f. 18. september 1939.
Svava Sigríður, f. 30. september 1942.
Guðjón Þórarinn, f. 29. júní 1949.
Ragnar, f. 14. október 1952.

Jóns er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Jón Ísak Sigurðsson


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir