Birna Jóhannesdóttir (Kirkjulundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. janúar 2022 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. janúar 2022 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: <nowiki>'''Birna Valgerður Jóhannesdóttir'''</nowiki> frá Kirkjulundi, húsfreyja, talsímakona fæddist 10. október 1937 í Skálholti yngra við Urðaveg 43 og lést 22. október 2019. Foreldrar hennar voru Jóhannes Brynjólfsson verslunarmaður, forstjóri, f. 20. september 1908 á Bólstað, d. 27. maí 1973, og kona hans Alda Björnsdóttir (Kirkjulandi)|Þórunn ‚‘‘...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

'''Birna Valgerður Jóhannesdóttir''' frá Kirkjulundi, húsfreyja, talsímakona fæddist 10. október 1937 í

Skálholti yngra við Urðaveg 43 og lést 22. október 2019.

Foreldrar hennar voru Jóhannes Brynjólfsson verslunarmaður, forstjóri, f. 20. september 1908 á Bólstað, d. 27. maí 1973, og kona hans Þórunn ‚‘‘‘Alda Björnsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, kaupmaður, f. 20. apríl 1915 á Kirkjulandi, d. 9. desember 2012.

Börn Öldu og Jóhannesar:

1. Lára Halla Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 25. október 1935 á Kirkjulandi. Maður hennar er Páll Sigurðarson járnsmiður.

2. Birna Valgerður Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 10. október 1937 á Urðavegi 43, Skálholti. Maður hennar er Jóhann Ingi Einarsson frá Götu, pípulagningameistari.

3. Guðbjörg Ásta Jóhannesdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 8. apríl 1940 á Hásteinsvegi 5. Maður hennar er Adólf Bjarnason stórkaupmaður.

4. Jóhannes Sævar Brynjólfsson pípulagningameistari, slökkviliðsmaður, atvinnurekandi, umsjónarmaður, f. 15. júlí 1941 á Hásteinsvegi 5, d. 20. mars 2008. Kona hans var Ágústa Guðfinna María Ágústsdóttir sjúkraliði.

5. Brynjólfur Jóhannesson sjúkrahússtarfsmaður, f. 21. júní 1953 í Sjúkrahúsinu. Kona hans er María Björg Filippusdóttir húsfreyja, sjúkrahússtarfsmaður.

Birna var með foreldrum sínum í æsku, í Skálholti-yngra, á Hásteinsvegi 5 og í Kirkjulundi.

Hún stundaði nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur og húsmæðraskólanum í Brighton á Englandi.

Birna var talsímavörður hjá Landsímanum í Eyjum og síðar í Reykjavík.

Þau Ingi giftu sig 1963, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu í Kirkjulundi, en á Fjólugötu  1 við Gos 1973.

Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu þar, dvöldu á heimili fyrir aldraða, en að síðustu dvöldu þau í Hraunbúðum.

Birna lést 2019 og Jóhann Ingi 2021.

I.              Maður Birnu, (11. maí 1963), var Jóhann Ingi Einarsson frá Götu, vélstjóri, pípulagningamaður, leigubílstjóri. f 29. febrúar 1940 í Nýborg, d.  17. október 2021 í Hraunbúðum.

Börn þeirra:

1. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 10. október 1963. Maður hennar er Óskar Ólafsson.

2. Erna Sigríður Jóhannsdóttir húsfreyja, sálfræðingur í Reykjavík, f. 29. maí 1965. Fyrrum maður hennar er Gunnar Hólm Ragnarsson. Maður hennar Eggert Gottskálksson.


Heimildir


  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 1. nóvember 2019. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.