Ása Magnúsdóttir (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2021 kl. 12:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2021 kl. 12:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ása Magnúsdóttir (Lambhaga)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Ása Magnúsdóttir.

Ása Magnúsdóttir frá Lambhaga, verkakona, húsfreyja fæddist þar 15. júlí 1931 og lést 8. júlí 2002 á Landakotsspítala.
Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson verkamaður, bræðslumaður, f. 19. ágúst 1875, d. 29. febrúar 1939, og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir frá Lambhaga, húsfreyja, f. 14. ágúst 1899, d. 4. október 1982.

Börn Guðrúnar og Magnúsar:

1. Guðríður Magnúsdóttir, f. 14. mars 1923 á Bergi á Eyrarbakka, d. 12. september 1937.
2. Guðsteinn Magnússon, f. 18. mars 1925 á Bergi á Eyrarbakka, d. 4. desember 2009. Kona hans Ragna Guðrún Hermannsdóttir.
3. Guðjón Magnússon, f. 12. ágúst 1927, síðast í Reykjavík, d. 8. júní 1997. Kona hans Sigríður Helga Ívarsdóttir, látin.
4. Björgvin Magnússon, verslunarmaður, kaupmaður í Kópavogi, f. 28. september 1928, d. 2. maí 2013. Kona hans Sigríður Kristín Karlsdóttir.
5. Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 14. apríl 1930, síðast í Keflavík, d. 30. maí 2001. Maður hennar Gunnar Sigurjónsson.
6. Ása Magnúsdóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1931, d. 8. júlí 2002. Maður hennar Jón Hjaltalín Hermundsson.
7. Gísli Magnússon bóndi í Meiri-Tungu í Holtahreppi, Rang, f. 13. desember 1932, d. 25. apríl 1993. Kona hans Jóna Sveinsdóttir.
8. Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1937, síðast í Keflavík, d. 2. september 1995. Maður hennar Helgi Gunnar Egilsson.

Ása var með foreldrum sínum og síðar móður sinni og Gísla Brynjólfssyni, síðari manni hennar.
Þau Jón giftu sig 1956, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 52, í Huldulandi við Heiðarveg 41, en síðast á Birkigrund 64 í Kópavogi.
Ása lést 2002. Jón dvaldi síðast á heimili aldraðra í Kópavogi. Hann lést 2006.

I. Maður Ásu, (17. júní 1956), var Jón Hjaltalín Hermundsson frá Strönd í V.-Landeyjum, f. 17. september 1923, d. 10. ágúst 2006.
Börn þeirra:
1. Hermann Gunnar Jónsson, f. 23. febrúar 1956. Kona hans Emma K. Garðarsdóttir.
2. Magnús Rúnar Jónsson, f. 18. febrúar 1958. Kona hans Auður Gunnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 18. júlí 2002. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.