Guðjón Magnússon (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Magnússon frá Lambhaga, húsgagnasmiður fæddist þar 12. ágúst 1927 og lést 8. júní 1997.
Foreldrar hans voru Magnús Jónsson verkamaður, bræðslumaður, f. 19. ágúst 1875, d. 29. febrúar 1939, og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1899, d. 4. október 1982.

Börn Guðrúnar og Magnúsar:
1. Guðríður Magnúsdóttir, f. 14. mars 1923, d. 12. september 1937.
2. Guðsteinn Magnússon, f. 18. mars 1925, d. 4. desember 2009. Kona hans Ragna Guðrún Hermannsdóttir.
3. Guðjón Magnússon, f. 12. ágúst 1927, síðast í Reykjavík, d. 8. júní 1997. Kona hans Sigríður Helga Ívarsdóttir, látin.
4. Björgvin Magnússon, verslunarmaður, kaupmaður í Kópavogi, f. 28. september 1928, d. 2. maí 2013. Kona hans Sigríður Kristín Karlsdóttir.
5. Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 14. apríl 1930, síðast í Keflavík, d. 30. maí 2001. Maður hennar Gunnar Sigurjónsson.
6. Ása Magnúsdóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1931, d. 8. júlí 2002. Maður hennar Jón Hjaltalín Hermundsson.
7. Gísli Magnússon bóndi í Meiri-Tungu í Holtahreppi, Rang, f. 13. desember 1932, d. 25. apríl 1993. Kona hans Jóna Sveinsdóttir.
8. Drengur, f. 22. júní 1936, d. sama dag.
9. Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1937, síðast í Keflavík, d. 2. september 1995. Maður hennar Helgi Unnar Egilsson.

Guðjón var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hans lést, er Guðjón var á tólfta árinu. Hann var síðar með móður sinni og Gísla Brynjólfssyni stjúpa sínum.
Hann nam húsgagnasmíði.
Hann fór úr Eyjum síðla á fimmta áratugnum.
Þau Sigríður Helga giftu sig 1949, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Bólstaðarhlíð 58.
Guðjón lést 1997.
Sigríður Helga dvaldi síðast á Hjúkrunarheimilinu Skjóli. Hún lést 2018.

I. Kona Guðjóns, (31. desember 1949), var Sigríður Helga Ívarsdóttir frá Ísafirði, húsfreyja, f. þar 1. desember 1929 og lést 22. febrúar 2018. Foreldrar hennar voru Ívar Alexanders Jónsson, f. 21. júlí 1903, d. 29. febrúar 1972, og kona hans Stefanía Eiríkdóttir frá Geirseyri í V.-Barð., húsfreyja, f. 22. ágúst 1899, d. 20. mars 1930.
Börn þeirra:
1. Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir, f. 26. ágúst 1949. Maður hennar Sigurður V. Gunnarsson.
2. Sólrún Ása Guðjónsdóttir, f. 1. ágúst 1952. Maður hennar Rúnar Friðgeirsson.
3. Vignir Guðjónsson, f. 26. júlí 1962. Kona hans Guðný Atladóttir Hraunfjörð.
4. Guðjón Guðjónsson, f. 9. júní 1966. Kona hans Margrét Grétarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.