Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir.

Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir frá Lambhaga, húsfreyja fæddist 14. apríl 1930 í Fagranesi við Hásteinsveg 34 og lést 30. maí 2001 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson verkamaður, bræðslumaður, f. 19. ágúst 1875, d. 29. febrúar 1939, og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir frá Lambhaga, húsfreyja, f. 14. ágúst 1899, d. 4. október 1982.

Börn Guðrúnar og Magnúsar:
1. Guðríður Magnúsdóttir, f. 14. mars 1923, d. 12. september 1937.
2. Guðsteinn Magnússon, f. 18. mars 1925, d. 4. desember 2009. Kona hans Ragna Guðrún Hermannsdóttir.
3. Guðjón Magnússon, f. 12. ágúst 1927, síðast í Reykjavík, d. 8. júní 1997. Kona hans Sigríður Helga Ívarsdóttir, látin.
4. Björgvin Magnússon, verslunarmaður, kaupmaður í Kópavogi, f. 28. september 1928, d. 2. maí 2013. Kona hans Sigríður Kristín Karlsdóttir.
5. Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 14. apríl 1930, síðast í Keflavík, d. 30. maí 2001. Maður hennar Gunnar Sigurjónsson.
6. Ása Magnúsdóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1931, d. 8. júlí 2002. Maður hennar Jón Hjaltalín Hermundsson.
7. Gísli Magnússon bóndi í Meiri-Tungu í Holtahreppi, Rang, f. 13. desember 1932, d. 25. apríl 1993. Kona hans Jóna Sveinsdóttir.
8. Drengur, f. 22. júní 1936, d. sama dag.
9. Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1937, síðast í Keflavík, d. 2. september 1995. Maður hennar Helgi Unnar Egilsson.

Jóna var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar lést, er hún var á níunda árinu. Hún var með móður sinni og systkinum í Lambhaga 1940.
Þau Gunnar giftu sig 1949, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Framnesvegi 15 í Keflavík.
Jóna lést 2001 og Gunnar 2008.

I. Maður Jónu Kristbjargar, (5. nóvember 1949), var Gunnar Ásberg Sigurjónsson bakari, f. 18. október 1923, d. 14. ágúst 2008. Foreldrar hans voru Sigurjón Jónsson sjómaður í Njarðvík, f. 1. nóvember 1891, d. 18. janúar 1976, og kona hans Díljá Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 20. september 1893, d. 10. nóvember 1928.
Fósturforeldrar Gunnars voru Eyjólfur Ólafsson Ásberg bakari í Keflavík, f. 19. júlí 1891, d. 27. nóvember 1954, og kona hans Guðný Jónasdóttir Ásberg húsfreyja, f. 2. júní 1893, d. 4. september 1968.
Börn þeirra:
1. Andvana drengur, f. 24. desember 1948.
2. Diljá Gunnarsdóttir, f. 3. febrúar 1950. Maður hennar Rúnar Mogensen.
3. Magnús Gunnarsson, f. 29. apríl 1954. Kona hans Aðalheiður Gunnarsdóttir.
4. Guðný Gunnarsdóttir, f. 18. ágúst 1961. Maður hennar Þórarinn Ólason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.