Guðsteinn Magnússon (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðsteinn Magnússon frá Fagranesi við Hásteinsveg 24, bifreiðastjóri fæddist 18. mars 1925 á Bergi á Eyrarbakka og lést 4. desember 2009.
Foreldrar hans voru Magnús Jónsson verkamaður, bræðslumaður, f. 19. ágúst 1875, d. 29. febrúar 1939, og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1899, d. 4. október 1982.

Börn Guðrúnar og Magnúsar:
1. Guðríður Magnúsdóttir, f. 14. mars 1923, d. 12. september 1937.
2. Guðsteinn Magnússon, f. 18. mars 1925, d. 4. desember 2009. Kona hans Ragna Guðrún Hermannsdóttir.
3. Guðjón Magnússon, f. 12. ágúst 1927, síðast í Reykjavík, d. 8. júní 1997. Kona hans Sigríður Helga Ívarsdóttir, látin.
4. Björgvin Magnússon, verslunarmaður, kaupmaður í Kópavogi, f. 28. september 1928, d. 2. maí 2013. Kona hans Sigríður Kristín Karlsdóttir.
5. Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 14. apríl 1930, síðast í Keflavík, d. 30. maí 2001. Maður hennar Gunnar Sigurjónsson.
6. Ása Magnúsdóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1931, d. 8. júlí 2002. Maður hennar Jón Hjaltalín Hermundsson.
7. Gísli Magnússon bóndi í Meiri-Tungu í Holtahreppi, Rang, f. 13. desember 1932, d. 25. apríl 1993. Kona hans Jóna Sveinsdóttir.
8. Drengur, f. 22. júní 1936, d. sama dag.
9. Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1937, síðast í Keflavík, d. 2. september 1995. Maður hennar Helgi Unnar Egilsson.

Guðsteinn var með foreldrum sínum í æsku, á Eyrarbakka, fluttist með þeim til Eyja 1926 og var með þeim í Lambhaga.
Hann varð bifreiðastjóri í Reykjavík.
Þau Ragna giftu sig 1957, eignuðust fjögur börn.
Ragna lést 2006 og Guðsteinn 2009.

I. Kona Guðsteins, (1. desember 1957), var Ragna Guðrún Hermannsdóttir húsfreyja, f. 6. desember 1934 að Ytri-Völlum í Kirkjuhvammshreppi í V.-Hún., d. 15. júlí 2006. Foreldrar hennar voru Hermann Daníelsson frá Tannastöðum í Hrútafirði, bóndi á Dagverðarnesseli á Skarðströnd, verkamaður í Reykjavík, f. 18. júní 1906 á Gafli í Víðidal, V.-Hún., d. 29. apríl 2000, og Sigurrós Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1914 í Gilhaga í Hrútafirði, d. 1. mars 1997.
Börn þeirra:
1. Ragnar Heiðar Guðsteinsson húsgagnasmíðameistari, f. 5. október 1954 í Reykjavík, d. 27. maí 2013. Kona hans Magdalena Svanhildur Gissurardóttir.
2. Magnea Guðrún Guðsteinsdóttir, á Spáni, f. 10. júní 1957 í Reykjavík, d. 22. mars 2014.
3. Henný Rós Guðsteinsdóttir, f. 4. ágúst 1960 í Reykjavík. Barnsfeður hennar Haukur Franz Jónsson og Einar Helgason.
4. Svanur Fannar Guðsteinsson, f. 17. júlí 1967 í Reykjavík. Sambúðarkona hans Þórey Erlingsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.