Helga Valtýsdóttir (Hvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. september 2020 kl. 15:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. september 2020 kl. 15:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Helga Valtýsdóttir. '''Helga Valtýsdóttir''' frá Hvoli við Heimagötu, og Kirkjufelli fæddist 21...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Helga Valtýsdóttir.

Helga Valtýsdóttir frá Hvoli við Heimagötu, og Kirkjufelli fæddist 21. júlí árið 1928 að Krókatúni í Hvolhreppi, Rang., (skírð Helga Runólfsdóttir eftir fóstru móður sinnar), og lést 19. apríl 2020 á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar voru Ásta Sigrún Guðjónsdóttir frá Varmadal á Rangárvöllum, f. þar 5. september 1905, d. 10. maí 1999 og Eyjólfur Júlíus Finnbogason bifreiðastjóri, trésmiður, f. 8. júlí 1902, d. 4. nóvember 1979.
Kjörfaðir Helgu var Valtýr Brandsson sjómaður, verkamaður, verkstjóri, f. 3. júní 1901 á Önundarhorni u. Eyjafjöllum, d. 1. apríl 1976.

Börn Ástu og Valtýs:
1. Jóhanna Valtýsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 17. júní 1930 í Sjólyst. Maður hennar Þórarinn Brynjar Þórðarson, látinn.
2. Stúlka, f. 12. júlí 1931 á Hvoli, d. 7. september 1931.
3. Ása Valtýsdóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1933 á Hvoli, d. 24. apríl 1981. Maður hennar Georg Sigurðsson, látinn.
4. Vilborg Valtýsdóttir, f. 17. mars 1936 á Hvoli, d. 3. júlí 1938.
5. Sveinn Ármann Valtýsson matsveinn, býr í Hafnarfirði, f. 4. apríl 1937 á Hvoli. Kona Kristín Rósa Jónasdóttir.
6. Guðbrandur Valtýsson sjómaður, býr í Njarðvík, f. 5. ágúst 1939 á Hvoli. Kona hans Hrefna Jónsdóttir.
7. Ástvaldur Valtýsson sjómaður, vélstjóri, fiskverkandi, f. 5. febrúar 1941 á Hvoli, d. 27. maí 2003. Kona hans Halldóra Sigurðardóttir.
8. Auðberg Óli Valtýsson bæjarstarfsmaður, f. 15. desember 1944 á Kirkjufelli, d. 5. júní 1994. Kona hans Margrét Óskarsdóttir.
9. Kristín Valtýsdóttir húsfreyja, f. 22. september 1946 á Kirkjufelli. Maður hennar Gunnar Árnason, látinn.
10. Jón Valtýsson sjómaður í Eyjum, f. 17. apríl 1948 á Kirkjufelli. Kona hans Þórhildur Guðmundsdóttir.
11. Sigríður Valtýsdóttir, f. 18. maí 1949 á Kirkjufelli, d. 19. október 1953.
12. Óskar Valtýsson verkamaður, býr í Eyjum, f. 7. mars 1951 á Kirkjufelli. Kona hans Jóhanna M. Þórðardóttir.
Kjörbarn Valtýs:
13. Helga Valtýsdóttir.
Fósturbarn hjónanna:
14. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.

Helga var með móður sinni í Krókatúni og flutti með henni til Eyja 1929.
Hún vann ýmis störf, en síðar var hún póstur hjá Póstinum í Garðabæ.
Þau Björn giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hraunbænum, en síðan í Einilundi í Garðabæ. Að síðustu dvaldi Helga á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hún lést 2020.

I. Barnsfaðir Helgu var Sigfús Jónas Guðmundsson sjómaður frá Flatey á Skjálfanda, S.-Þing., f. 1. ágúst 1921, d. 21. september 1993.
Barn þeirra:
1. Ásta María Jónasdóttir húsfreyja, f. 22. október 1947 á Kirkjufelli. Maður hennar Hallgrímur Júlíusson.

III. Maður Helgu, (15. október 1967), er Björn Björnsson húsasmíðameistari, f. 28. desember 1938. Foreldrar hans voru Björn Gústafsson bóndi í Prestahvammi í Aðaldal, S.-Þing, f. 10. september 1901, d. 9. janúar 1946, og kona hans Sigríður Björnsdóttir frá Hvoli í Vesturhópi, V.-Hún., húsfreyja og bóndi, f. þar 25. ágúst 1906, d. 5. júní 1998.
Börn þeirra:
2. Sigríður Björnsdóttur læknir, f. 14. maí 1971. Maður hennar Páll Ástmar Guðmundsson.
3. Birna Björnsdóttir lyfjafræðingur, f. 27. maí 1972. Sambýlismaður Anthony Mills.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.