Ingólfur Ólafsson (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. september 2019 kl. 16:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. september 2019 kl. 16:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ingólfur Ólafsson (Hólnum)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingólfur Ólafsson frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, sjómaður, f. 23. janúar 1914, drukknaði 12. janúar 1941.
Foreldrar hans voru Ólafur Sigurðsson bóndi, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946 og kona hans Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.

Börn Aðalheiðar og Ólafs í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2.Guðrún Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957, kona Carls Gränz málara- og trésmíðameistara.
3. Aðalheiður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1901, d. 28. desember 1990, kona Guðna Ólafssonar.
4. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, maður Kristínar Jónsdóttur.
5. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
6. Ingólfur Ólafsson sjómaður, síðast í Görðum, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
7. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
8. Kjartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969. Kona hans var Sigríður Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja.

Ingólfur var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim frá Vestri-Torfastöðum til Eyja 1925 og var með þeim í Ásbyrgi á því ári. Hann flutt með þeim á Hólinn 1927, var verkamaður þar 1930, sjómaður í Görðum 1934 og 1941, þegar hann drukknaði af slysförum á Höfninni: „Þeir voru að leggja v.b. Friðrik við festar í höfninni. Kom þá ofsalegur kastvindur, sem kastaði þeim útbyrðis. Vestan ofsarok var þegar þetta skeði.“ (Sjá Minningarrit P.O.).


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.