Guðni Tómas Guðmundsson
Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri fæddist 20. september 1906 í Reykjavík og lést 2. apríl 1995 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson ökumaður, múrari, skipasmiður, verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876, d. 2. október 1958, og fyrri kona hans Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880, d. 13. nóvember 1913.
Stjúpmóðir Guðna Tómasar var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880, d. 11. maí 1954.
Börn Guðmundar og Kristjönu Rósu Sigurðardóttur fyrri konu hans í Eyjum:
1. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
2. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
3. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
4. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.
Börn Guðmundar og Guðríðar Þórunnar síðari konu hans í Eyjum:
5. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 17. nóvember 1985.
6. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
7. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920 í Reykjavík, d. 25. október 1997.
Barn Guðmundar með Vilborgu Kristjánsdóttur:
8. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.
Barn Guðmundar með Ólínu Sigríði Ólafsdóttur:
9. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f.
11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.
Guðni var fyrstu ár sín með foreldrum sínum í Reykjavík, en móðir hans lést er hann var 7 ára.
Hann fór í fóstur til ættfólks síns í Mosfellssveit sjö ára, en var kominn til föður síns og Guðríðar Þórunnar, síðari konu hans 1920.
Hann fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó með þeim á Eiðinu, að Ofanleiti, í Stórhöfðavita og á Brimhólum.
Guðni Tómas fór til lands og mun hafa dvalið í A-Landeyjum. Þaðan kom hann til Eyja 1929, var leigjandi ásamt Ingólfi bróður sínum á Hásteinsvegi 8 1930.
Hann varð vélstjóri og sjómaður.
Þau Júlía giftu sig 1940, bjuggu í Heiðardal, Hásteinsvegi 2 á því ári, eignuðust kjörbarnið Yngva þar 1941, son Önnu Hjálmarsdóttur vinnukonu í Heiðardal, f. 10. febrúar 1923,
d. 13. janúar 1995.
Þau fluttu úr Eyjum á fyrri hluta fimmta áratugarins, bjuggu í Reykjavík.
Júlía lést 1993 og Guðni Tómas 1995.
I. Kona Guðna Tómasar, (26. október 1940), var Júlía Gróa Gísladóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1904 í Sjávarborg á Eyrarbakka, d. 6. maí 1993.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Yngvi Guðnason vélvirki, f. 25. júlí 1941 í Eyjum. Kona hans er Hulda Þorsteinsdóttir frá Arnarfelli, Skólavegi 29.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 7. apríl 1995. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.