Sigurður Guðmundsson (Eiðinu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Guðmundsson frá Eiðinu, sjómaður fæddist 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson ökumaður, múrari, skipasmiður, verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876, d. 2. október 1958, og fyrri kona hans Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880, d. 13. nóvember 1913.
Stjúpmóðir Sigurðar var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880, d. 11. maí 1954.

I. Barnsmóðir Guðmundar var Vilborg Kristjánsdóttir, þá í Ólafsvík, en sama ár vinnukona á Akri í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en síðar á Mið-Hvammi í Dýrafirði, f. 11. júlí 1868, d. 22. febrúar 1941.
Barn þeirra:
1. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.

II. Fyrri kona Guðmundar var Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880 í Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, d. 13. nóvember 1913.
Börn þeirra:
2. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
3. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
4. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
5. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Ólína Sigríður Ólafsdóttir í Reykjavík, f. 11. maí 1876, d. 22. júlí 1928.
Barn þeirra:
6. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

IV. Síðari kona Guðmundar, (1920), var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.
Börn þeirra:
7. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, síðar á Vatnsleysuströnd, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, d. 17. nóvember 1985.
8. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
9. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920, d. 25. október 1997.

Sigurður var með foreldrum sínum í frumbernsku. Móðir hans dó, er hann var á tíunda árinu.
Hann var sendur til Magnúsar Jónssonar föðurbróður síns á Halldórsstöðum á Vatnsleysuströnd og þar var hann 1920.
Faðir hans tók hann til sín, og hann fluttist með honum og Guðríði Þórunni stjúpu sinni til Eyja 1921, var með þeim á Eiðinu 1921 og 1922, en ekki síðan.
Hann leitaði til Austfjarða, stundaði þar sjómennsku og drukknaði 1928.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.