Margrét Ólafsdóttir (Birtingarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2018 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2018 kl. 19:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurveig Margrét Ólafsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, verkakona fæddist 14. ágúst 1929 á Siglufirði og lést 5. júní 1995 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Ólafur Sölvi Bjarnason síldarmatsmaður, síðar í Eyjum, f. 10. ágúst 1906 í Fellssókn í Skagafirði, d. 7. maí 1958, og Guðmunda Sólveig Jóhannsdóttir húsfreyja, síðar í Eyjum, f. 26. ágúst 1906 í Ártúni í Hofssókn í Skagafirði, d. 10. febrúar 1982.

Börn Guðmundu Sólveigar og Ólafs Sölva í Eyjum:
1. Bjarni Ólafsson verkamaður, f. 18. október 1932. Kona hans Erla Marinósdóttir Olsen.
2. Jóhann Guðmundur Ólafsson verkamaður, f. 15. apríl 1935. Kona hans Guðrún Steinsdóttir.
3. Elísabet Ólafsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 15. apríl 1945, d. 2. maí 2008. Maður hennar var Þorkell Rúnar Sigurjónsson.

Margrét ólst upp á Siglufirði. Hún eignaðist barn þar með Kristjáni Guðna 1948, fluttist til Eyja 1950 og bjó þar síðan nema í Gosinu 1973.
Þau Kristján Guðni giftu sig 1952, eignuðust tíu börn.
Þau bjuggu í fyrstu á Hásteinsvegi 7 og enn 1956, í Birtingarholti, Vestmannabraut 61 1958 og enn 1964, en síðar á Kirkjuvegi 26. Þar bjuggu þau við Gos 1973 og einnig, er þau fluttust heim.
Kristján lést af slysförum 1983. Margrét vann hjá Vinnslustöðinni og síðustu árin var hún leiðbeinandi í athvarfi í Hamarsskóla. Hún var varaformaður Verkakvennafélagsins Snótar um tíma, og starfaði í Slysavarnadeildinni Eykyndli.
Margrét bjó á Kirkjuvegi 26 til andláts. Hún lést 1995.

I. Maður Sigurveigar Margrétar, (26. desember 1952), var Kristján Guðni Sigurjónsson frá Reykjadal, sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, framkvæmdastjóri f. 3. ágúst 1931 í Ólafsfirði, d. 15. desember 1983.
Börn þeirra:
1. Ólafur Örn Kristjánsson vélfræðingur í Ástarlíu, f. 1. apríl 1948 á Siglufirði.
2. Sigurjón Marvin Kristjánsson vélstjóri, byggingatæknifræðingur í Noregi, f. 7. júní 1952 að Hásteinsvegi 7.
3. Anna María Kristjánsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 10. desember 1953 að Hásteinsvegi 7.
4. Hrafnhildur Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, vekakona í Kópavogi, f. 26. apríl 1955 að Hásteinsvegi 7.
5. Trausti Kristjánsson stýrimaður, f. 20. september 1956.
6. Fanney Harða Guðmunda Kristjánsdóttir húsfreyja í Borgarnesi, f. 16. ágúst 1958.
7. Kristján Kristjánsson vélstjóri, rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 18. október 1959.
8. Margrét Elísabet Kristjánsdóttir húsfreyja, leikskólakennari í Eyjum, f. 26. nóvember 1962.
9. Bjarki Kristjánsson stýrimaður í Eyjum, f. 18. febrúar 1964.
10. Brynjar Kristjánsson stálskipasmiður í Eyjum, f. 13. október 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.