Árni Jónsson (Stíghúsi)
Árni Jónsson sjómaður, húsmaður í Stíghúsi fæddist 16. maí 1878 og drukknaði 20. maí 1901.
Foreldrar hans voru Jón Valdason bóndi í Steinum u. Eyjafjöllum, f. 1851, d. 15. janúar 1907, og kona hans Þuríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 26. mars 1849, d. 1. júní 1911.
Börn Jóns Valdasonar og Þuríðar Jónsdóttur í Eyjum voru:
1. Guðjón Jónsson formaður á Sandfelli, f. 21. mars 1873, d. 1. júlí 1941.
2. Valdi Jónsson sjómaður í Sandgerði, f. 21. júní 1874, d. 21. ágúst 1947.
3. Magnús Jónsson steinhleðslumeistari, f. 1875, d. 1958.
4. Árni Jónsson sjómaður, húsmaður í Stíghúsi, f. 16. maí 1878, d. 20. maí 1901.
Árni var með foreldrum sínum í æsku. Hann var húsmaður í Stíghúsi 1901 og fórst með Sjólyst við Bjarnarey á því ári.
Þeir, sem fórust voru:
1. Jón Eyjólfsson bóndi á Kirkjubæ
2. Magnús Guðlaugsson í Fagurlyst
3. Árni Jónsson
húsmaðir í Stíghúsi.
4. Hreinn Þórðarson í Uppsölum.
5. Pálmi Guðmundsson í Stíghúsi.
6. Eyjólfur Guðmundsson frá Kirkjulandi í A-Landeyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.