Sigríður Magnúsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 15:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. mars 2014 kl. 15:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigríður Magnúsdóttir (Brekkuhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja á Bryggjum í A-Landeyjum og í Brekkuhúsi fæddist 12. júní 1824 og lést 5. september 1894.
Faðir hennar var Magnús bóndi á Snotru og Bryggjum í A-Landeyjum, f. 28. október 1792 í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni), d. 26. janúar 1856 á Bryggjum, Vigfússon bónda í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) og víðar í A- og V-Landeyjum, f. 1749, d. 27. febrúar 1813, Magnússonar bónda á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. í árslok 1702, á lífi 1763, Ólafssonar, og konu Magnúsar á Kirkjulandi, Kristínar húsfreyju, f. 1712, d. 18. desember 1809, Jónsdóttur.
Móðir Magnúsar á Snotru og kona Vigfúsar bónda var Guðlaug húsfreyja, f. 1754, d. 5. júní 1820, Jónsdóttir bónda á Vindási á Landi, f. 1727, d. 12. febrúar 1787, Bjarnasonar, og konu Jóns á Vindási, Ástríðar húsfreyju, f. 1729, d. 28. nóvember 1785, Jónsdóttur.

Móðir Sigríðar í Brekkuhúsi og kona Magnúsar á Snotru, var Guðrún húsfreyja, f. 1781 í Vatnshól í A-Landeyjum, d. 6. nóvember 1860 á Bryggjum, Ólafsdóttir bónda á Snotru, f. 1735, d. 27. nóvember 1813 á Snotru, Magnússonar bónda á Kirkjulandi, f. í árslok 1702, á lífi 1763, Ólafssonar, og konu Magnúsar á Kirkjulandi, Kristínar húsfreyju, f. 1712, d. 18. desember 1809, Jónsdóttur.
Móðir Guðrúnar húsfreyju á Snotru og kona Ólafs bónda Magnússonar var Sigríður húsfreyja, f. 1746 í Álfhólahjáleigu í V-Landeyjum, d. 31. júlí 1823, Sigurðardóttir bónda, smiðs og formanns á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 1702, d. 29. maí 1783 í Þerney í Kollafirði, Þorkelssonar, og konu Sigurðar á Búðarhóli, Margrétar húsfreyju, f. 1709, á lífi 1745, Guðmundsdóttur.

Sigríður var 11 ára með foreldrum sínum á Bryggjum 1835, 17 ára með þeim þar 1840, 26 ára þar 1850.
Þau Sigurður Ögmundsson voru gift vinnuhjú á Bryggjum 1855 og bændahjón þar 1860 með tvö börn sín, Magnús 2 ára og Guðrúnu eins árs. Auk þess var þar í uppeldi Salvör Sigurðardóttir, dóttir Sigurðar bónda, 2 ára. Einnig voru þar foreldrar Sigurðar, Ögmundur og Valgerður, og móðir Sigríðar húsfreyju, Guðrún Ólafsdóttir.
Þau Sigurður Ögmundsson bjuggu á Bryggjum til ársins 1879, en þá fluttust þau til Eyja og voru komin að Brekkuhúsi 1880.
Árið 1880 voru þar með þeim börn þeirra Guðrún eldri og Guðrún yngri, og Valgerður og Guðlaugur. Valgerður móðir Sigurðar 76 ára ekkja er einnig hjá þeim. Proventufólk er þar, Árni Guðmundsson fyrrum bóndi í Brekkuhúsi, 62 ára, (hrapaði til bana í Hamrinum) og Þóra Stígsdóttir 55 ára. Hún var kona Árna, fyrrverandi húsfreyja í Brekkuhúsi.
Niðursetningurinn Ingibjörg Guðmundsdóttir 79 ára var líka hjá þeim.
Við manntal 1890 hafði fækkað hjá þeim heimilisfólkinu. Guðlaugur sonur þeirra var 26 ára vinnumaður þar, vinnukonan Þuríður Jónsdóttir 59 ára og sveitarómaginn Björn Kristjánsson 55 ára.
Sigríður lést 1894 og Sigurður maður hennar fór til Vesturheims 1905 ásamt Guðlaugi syni sínum, konu Guðlaugs og 3 börnum þeirra hjóna.

Sigríður var systir Vigfús Magnússonar sjómanns í Hólshúsi, f. 9. október 1815 og lést af vosbúð á skipinu „Ægi“ í Útilegunni miklu 25. febrúar 1869.

Maður Sigríðar Magnúsdóttur var Sigurður Ögmundsson bóndi, f. 28. mars 1834.
Börn þeirra í Eyjum:
1. Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Jakobshúsi, f. 10. nóvember 1862, d. 21. nóvember 1906, fyrri kona Jakobs Tranberg.
2. Guðlaugur Sigurðsson bóndi og sjómaður í Brekkuhúsi, síðar í Vesturheimi, f. 6. október 1864, kvæntur Margréti Árnadóttur.
Önnur börn þeirra Sigríðar:
3. Magnús Sigurðsson bóndi á Heylæk, f. 1858.
4. Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Sandhól á Miðnesi, f. 1860.
5. Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja í Vesturheimi, f. 1866.


Heimildir