Ritverk Árna Árnasonar/Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2013 kl. 11:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2013 kl. 11:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''''<big>Kynning.</big>''''' '''Sveinbjörn Einarsson''' trésmiður frá Þorlaugargerði vestra fæddist 12. júní 1890 og lést 13. ágúst 1984.<br...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Sveinbjörn Einarsson trésmiður frá Þorlaugargerði vestra fæddist 12. júní 1890 og lést 13. ágúst 1984.
Foreldrar hans voru Einar bóndi Sveinsson bóndi í Þorlaugargerði, f. í Sólheimahjáleigu í Mýrdal 13. maí 1855 og kona hans Guðríður Helgadóttir húsfreyja frá Gerði, f. í Eyjum 31. október 1854, d. 14. júlí 1922.

Kona Sveinbjörns var Guðbjörg Ingvarsdóttir, f. að Hellnahóli undir Eyjafjöllum 28. júní 1897, d. 2. september 1987.
Börn Sveinbjörns og Guðbjargar:
1. Fanney, f. 12. september 1918, d. 29. desember 1990.
2. Ingvi, f. 30. janúar 1922, d. 10. ágúst 1943.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sveinbjörn er allhár vexti, dökkhærður og samsvarar sér vel. Fríður og prúðmannlegur í allri framkomu, kátur og léttur í lund, brosmildur og sviphýr og ágætur félagi.
Hann var afbragðs góður fjallamaður, bæði laus og bundinn, veiðimaður ágætur, iðinn og kappsfullur.
Stundum virtist Sveinbjörn vera feiminn eða halda sig til baka, en lítt var það til baga eða mjög áberandi, þótt kunnugir yrðu þessa varir. Hann fór á besta aldri úr Eyjum og hætti þá fuglaveiði og bjargferðum. Er nú við Hlíðardalsskóla í Ölfusi og hefir unnið þar við byggingu skólans, því að hann var smiður að iðn.
Sveinbjörn var víða um eyjar í bjargferðum, einn af afreksmönnum Elliðaeyjar og Bjarnareyjar, sem gerði sitt til að auka aflahróður þeirra eyja, er keppnin var mest milli austureyja og suðureyjanna. Sveinbjörn var afbragðs sigamaður, seig oft skemmtisig fyrir almenning og þótti takast vel.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir