Bryndís Sigurðardóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. janúar 2023 kl. 17:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. janúar 2023 kl. 17:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bryndís Sigurðardóttir og Kristinn Karlsson.

Bryndís Sigurðardóttir húsfreyja á Búhamri fæddist 22. janúar 1941 á Skaftafelli í Fáskrúðsfirði og lést 8. desember 2018.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þórðarson útgerðarmaður og fiskverkandi, f. 10. mars 1918, d. 9. september 1991, og kona hans Lilja Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 11. apríl 1921, d. 17. október 2001.

Systkini Bryndísar eru:
1. Ásdís Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. október 1943.
2. Svanhildur Sigurðardóttir húsfreyja, f. 16. febrúar 1945.
3. Vilhjálmur Sigurður Sigurðsson, f. 3. október 1953.
4. Lilja Huld Sigurðardóttir, f. 19. febrúar 1957.

Móðursystkini Bryndísar í Eyjum voru:
1. Þorleifur Bragi Guðjónsson verkamaður, f. 23. júlí 1922, d. 9. nóvember 2010.
Hálfsystkini móður hennar í Eyjum voru:
2. Sigurðar Stefánsson sjómaður, verkalýðsleiðtogi, f. 26. janúar 1915, d. 23. september 1967 og
3. Kristín Stefánsdóttur á Búðarfelli, f. 13. júlí 1916, d. 16. maí 2001.

Bryndís fluttist með foreldrum sínum til Eyja 1941. Bjuggu þau í fyrstu í Steinholti, síðan á Búastöðum, uns þau fluttust að Hólagötu 42.
Þau Kristinn giftu sig 1960, fluttust í Mosfellssveit 1979, en til Eyja fluttust þau aftur 2009 og bjuggu á Búhamri.
Bryndís lést 2018.

Maður Bryndísar, (26. desember 1960), er Kristinn Karlsson stöðvarstjóri, f. 4. október 1936 á Stokkseyri.
Börn þeirra eru:
1. Harpa Kristín Kristinsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1958.
2. Sigurður Kristinsson fagmaður af tölvubraut Tækniskólans, f. 7. desember 1964.
3. Arna Dís Kristinsdóttir húsfreyja, f. 30. júlí 1972.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.