Margrét Íris Grétarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Margrét Íris Grétarsdóttir''' húsfreyja, fiskverkakona, verslunarmaður, kaupmaður fæddist 25. desember 1954 í Eyjum. <br> Foreldrar hennar voru Grétar Þorgilsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 19. mars 1926, d. 31. maí 2020, og kona hans Þórunn Pálsdóttir frá Þingholti, húsfreyja, verslunarmaður, f. 27. september 1928. Börn Þórunnar og Grétars:<br> 1. Þorsteina Grétarsd...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Íris Grétarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, verslunarmaður, kaupmaður fæddist 25. desember 1954 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Grétar Þorgilsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 19. mars 1926, d. 31. maí 2020, og kona hans Þórunn Pálsdóttir frá Þingholti, húsfreyja, verslunarmaður, f. 27. september 1928.

Börn Þórunnar og Grétars:
1. Þorsteina Grétarsdóttir húsfreyja, hárgreiðslukona, f. 5. apríl 1950 í Þingholti. Maður hennar er Ómar Garðarsson.
2. Páll Sigurgeir Grétarsson sjómaður, matsveinn, f. 1. mars 1951. Kona hans er Herdís Kristmannsdóttir.
3. Gunnar Þór Grétarsson bæjarstarfsmaður, f. 15. janúar 1953. Fyrri kona hans var Guðríður Jónsdóttir Guðmundssonar, síðari kona var Auður Einarsdóttir.
4. Margrét Íris Grétarsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 25. desember 1954. Maður hennar er Einar Hallgrímsson Þórðarsonar.
5. Lára Huld Grétarsdóttir húsfreyja skrifstofumaður í Hafnarfirði, f. 8. júlí 1957. Maður hennar er Steindór Ari Steindórsson.
6. Sindri Þór Grétarsson sjómaður, f. 28. apríl 1970. Kona hans er Sæfinna Ásbjörnsdóttir.

Margrét var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var fiskiðnaðarkona. Þau Einar ráku verslunina Callas í fimm ár og síðan var hún verslunarmaður í ýmsum verslunum.
Þau Einar giftu sig 1977, eignuðust eitt barn. Þau byggðu og búa í Draumbæ nálægt gamla bæjarstæðinu.

I. Maður Margrétar Írisar, (4. júní 1977), er Einar Hallgrímsson rafvirkjameistari, f. 4. mars 1955.
Barn þeirra:
1. Bryndís Einarsdóttir húsfreyja, f. 31. mars 1977. Maður hennar Einar Björn Árnason og Mjallar Kristjánsdóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.