Petra Guðmundsdóttir (Búðarfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðný Petra Guðmundsdóttir.

Guðný Petra Guðmundsdóttir húsfreyja á Búðarfelli fæddist 28. febrúar 1900 og lést 30. desember 1976.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Mikkelsson bóndi og verkamaður á Fáskrúðsfirði, síðar verkamaður á Búðarfelli f. 4. apríl 1871 (1870) í Færeyjum, d. 28. febrúar 1952 í Eyjum, og kona hans Snjólaug Jónsdóttir húsfreyja á Fáskrúðsfirði, síðar á Búðarfelli, f. 20. apríl 1871, d. 26. júlí 1950 í Eyjum.

Guðný Petra var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fluttist til Eyja 1918 og var í vist hjá Stefaníu Einarsdóttur og Jóni á Hólmi.
Þau Ólafur byggðu Búðarfell á árunum 1924-1925.
Ólafur lést 1928.
Petra giftist Runólfi 1930 og bjuggu þau síðan á Búðarfelli.

Guðný Petra var tvígift.
I. Fyrri maður hennar var Ólafur Einarsson formaður frá Sandprýði, f. 15. janúar 1898, d. 27. janúar 1928.
Börn þeirra:
1. Einar Guðmundur Ólafsson, vélstjóri, síðar húsvörður í Hafnarfirði, f. 13. mars 1921 á Litlahrauni, d. 2. desember 1984.

II. Síðari maður Guðnýjar Petru, (1930), var Runólfur Runólfsson, f. 29. maí 1892, d. 16. janúar 1879.
Börn þeirra:
2. Ólafur Helgi Runólfsson smiður, framkvæmdastjóri, síðar húsvörður, f. 2. janúar 1932, d. 7. desember 2009.
3. Stefán Guðlaugur Runólfsson verkstjóri, f. 10. september 1933.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.