Kristín Vigfúsdóttir (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2014 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2014 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Vigfúsdóttir húsfreyja frá Hólshúsi fæddist 9. mars 1861 og lést 3. september 1889.
Foreldrar hennar voru Vigfús Magnússon sjómaður í Hólshúsi, f. 9. október 1815, d. 25. febrúar 1869 í Útilegunni miklu, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. janúar 1828, d. 13. maí 1882.

Kristín var 9 ára með ekkjunni og húskonunni móður sinni í Hólshúsi 1870, 19 ára vinnukona í Landlyst hjá Þorsteini Jónssyni héraðslækni og Matthildi Magnúsdóttur húsfreyju við manntal 1880. Hún bjó á Uppsölum við giftingu 1887, en lést á Kirkjubæ 1889.

Maður Kristínar, (4. desember 1887), var Nikulás Guðmundsson húsmaður í Uppsölum, síðar á Kirkjubæ.
Þau Nikulás voru barnlaus.


Heimildir