Guðmundur Guðmundsson eldri (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. mars 2014 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. mars 2014 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðmundsson eldri, bóndi á Kirkjubæ, fæddist 1753 og lést 28. september 1825.
Foreldrar hans voru sr. Guðmundur Högnason prestur á Kirkjubæ, f. 1713, d. 6. febrúar 1795, og kona hans Guðrún Hallsdóttir húsfreyja, f. 1725, d. 16. desember 1785.

Börn sr. Guðmundar og Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1749, d. 12. febrúar 1817. Maki er ókunnur.
2. Stefán Guðmundsson bondi á Kirkjubæ, f. 1750, d. 13. febrúar 1793, kvæntur Vilborgu Erlendsdóttur húsfreyju.
3. Guðmundur Guðmundsson eldri, bóndi á Kirkjubæ, f. 1753, d. 28. september 1825. Kona hans var Þuríður Einarsdóttir húsfreyja
4. Anna Guðmundsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 1757, d. 17. apríl 1849, kona sr. Bjarnhéðins Guðmundssonar.
5. Rakel Guðmundsdóttir húsfreyja í Gvendarhúsi, f. 1758, d. 20. febrúar 1793, kona Bergsteins Guðmundssonar bónda og hreppstjóra.
6. Árni Guðmundsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1762, d. 21. apríl 1819. Fyrri kona hans var Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja. Síðari kona hans var Ástríður Þorláksdóttir húsfreyja.

Guðmundur var bóndi á Kirkjubæ 1801 og var þar með Þuríði konu sinni. Hjá þeim voru Sólrún Bjarnadóttir og Ólafur Sigvaldason vinnufólk.

Kona Guðmundar var Þuríður Einarsdóttir húsfreyja, f. 1745, d. 6. apríl 1801.
Barneignir þeirra eru ókunnar. (Ath. að fæðingaskrá í Eyjum er til frá árinu 1786, en dánarskrá með eyðum frá 1785)


Heimildir