Tómas Njáll Pálsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. ágúst 2024 kl. 11:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. ágúst 2024 kl. 11:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Tómas Njáll Pálsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Tómas Njáll Pálsson, bankastarfsmaður fæddist 4. september 1950 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Páll Eyjólfsson forstjóri, f. 22. september 1901 á Klöpp í Höfnum, Gull., d. 4. apríl 1986, og kona hans Fanný Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.

Börn Fannýjar og Páls:
1. Guðjón Pálsson tónlistarmaður, f. 23. ágúst 1929 í Háagarði, d. 12. apríl 2014.
2. Helga Pálsdóttir, f. 30. mars 1931 í Háagarði, d. 6. janúar 1932 í Háagarði.
3. Eyjólfur Helgi Pálsson skólastjóri, framkvæmdastjóri, f. 20. maí 1932 í Háagarði, d. 29. október 1998.
4. Jón Pálsson sjómaður, f. 18. júní 1934 að Helgafellsbraut 19, d. 22. júní 2015.
5. Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 14. apríl 1939 á Helgafellsbraut 19.
6. Guðrún Ásta Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 20. apríl 1940 á Helgafellsbraut 19.
7. Erla Pálsdóttir húsfreyja, starfsstúlka, f. 8. maí 1944 á Heiðarvegi 28.
8. Tómas Njáll Pálsson bankastarfsmaður, f. 4. september 1950 á Heiðarvegi 28.

Þau Sigurrós giftu sig, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þairra nýfætt. Þau búa við Foldahraun 11.

I. Kona Tómasar er Sigurrós Ingólfsdóttir, húsfreyja, starfsmaður Íþróttamiðstöðvarinnar í Eyjum, f. 25. nóvember 1950.
Börn þeirra:
1. Íris Tómasdóttir, f. 7. júlí 1968, d. 8. júlí 1968.
2. Tómas Ingi Tómasson, f. 7. júní 1969 í Eyjum.
3. Anna Lilja Tómasdóttir, f. 30. október 1974 í Rvk.
4. Thelma Rós Tómasdóttir, f. 16. febrúar 1984 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.