Páll Eyjólfsson forstjóri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Páll Eyjólfsson forstjóri fæddist 22. september 1901 á Klöpp í Höfnum, Gullbr.s. og lést 4. apríl 1986.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Símonarson bóndi og sjómaður, f. 22. ágúst 1851, d. 22. ágúst 1931, og kona hans Helga Gísladóttir húsfreyja, f. 7 september 1881, d. 29. september 1957.

Páll var með foreldrum sínum í Skólanum í Höfnum 1901, í Merkinesi þar 1910 og 1920.
Páll fluttist í Hrunamannahrepp og þaðan til Eyja 1923 og vann verkamannastörf. Hann varð síðan forstjóri Sjúkrasamlagsins og gegndi því starfi meðan aldur leyfði.
Þau Páll giftu sig 1929 og bjuggu í Háagarði. Þar fæddust Guðjón, Helga og Eyjólfur. Þau misstu Helgu á fyrsta aldursári hennar.
Eyjólfur faðir Páls kom til þeirra í Háagarð 1930 og lést hjá þeim 1931.
Þau fluttust að Helgafellsbraut 19 og þar fæddist Jón, Guðlaug og Ásta.
Á Heiðarvegi 28 bjuggu þau frá 1942. Þar fæddust Erla og Tómas
Hjónin fluttust til Reykjavíkur í Gosinu 1973 og bjuggu þar í tvö ár, en fluttu þá til Eyja og bjuggu þar síðan.
Páll lést 1986. Fanný dvaldi að síðustu í Hraunbúðum og lést 1994.

Kona Páls, (6. júlí 1929), var Fanný Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.
Börn Fannýjar og Páls:
1. Guðjón Pálsson tónlistarmaður, f. 23. ágúst 1929 í Háagarði, d. 12. apríl 2014.
2. Helga Pálsdóttir, f. 30. mars 1931 í Háagarði, d. 6. janúar 1932 í Háagarði.
3. Eyjólfur Helgi Pálsson skólastjóri, framkvæmdastjóri, f. 20. maí 1932 í Háagarði, d. 29. október 1998.
4. Jón Pálsson sjómaður, skipstjóri, f. 18. júní 1934 að Helgafellsbraut 19, d. 22. júní 2015.
5. Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 14. apríl 1939 á Helgafellsbraut 19.
6. Guðrún Ásta Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 20. apríl 1940 á Helgafellsbraut 19.
7. Erla Pálsdóttir húsfreyja, starfsstúlka, f. 8. maí 1944 á Heiðarvegi 28.
8. Tómas Njáll Pálsson bankastarfsmaður, f. 4. september 1950 á Heiðarvegi 28.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.