Sigrún Jóelsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 16:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 16:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigrún Jóelsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Jóelsdóttir, húsfreyja fæddist 7. júlí 1969 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðrún Rannveig Pétursdóttir frá Kirkjubæ, húsfreyja, f. 10. desember 1939, d. 19. maí 2015, og maður hennar Jóel Guðmundsson frá Háagarði, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, f. 1. júlí 1936, drukknaði 4. mars 1981.

Börn þeirra:
1. Guðmundur Eyjólfur Jóelsson bifreiðastjóri, f. 5. maí 1958. Ókv.
2. Sævar Ingi Jóelsson verkamaður, f. 19. nóvember 1963. Ókv.
3. Lilja Jóelsdóttir húsfreyja, starfsmaður leikskóla, f. 28. júlí 1965. Maður hennar Guðjón Vilmar Reynisson.
4. Sigrún Jóelsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1969. Fyrrum maður hennar Halldór Jón Jóhannesson. Sambúðarmaður hennar Baldvin Vilhjálmsson.

Þau Halldór Jón giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Þau Baldvin hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman.

I. Maður Sigrúnar, skildu, er Halldór Jón Jóhannesson, f. 15. september 1968. Foreldrar hans Jóhannes Daði Halldórsson, f. 21. nóvember 1946, og Anna Meyvantsdóttir, f. 18. mars 1950.
Barn þeirra:
1. Jóel Daði Halldórsson, f. 5. ágúst 1987.

II. Sambúðarmaður Sigrúnar er Baldvin Rúnar Vilhjálmsson, bílaviðgerðarmaður, f. 16. mars 1965. Foreldrar hans Vilhjálmur Albert Skarphéðinsson, f. 11. desember 1942, og Hildur Gunnarsdóttir, f. 22. mars 1945, d. 7. maí 2020.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.