Lilja Jóelsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 16:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2024 kl. 16:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Lilja Jóelsdóttir, húsfreyja, starfsmaður leikskóla fæddist 28. júlí 1965 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Guðrún Rannveig Pétursdóttir frá Kirkjubæ, húsfreyja, f. 10. desember 1939, d. 19. maí 2015, og maður hennar Jóel Guðmundsson frá Háagarði, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, f. 1. júlí 1936, drukknaði 4. mars 1981.

Börn þeirra:
1. Guðmundur Eyjólfur Jóelsson bifreiðastjóri, f. 5. maí 1958. Ókv.
2. Sævar Ingi Jóelsson verkamaður, f. 19. nóvember 1963. Ókv.
3. Lilja Jóelsdóttir húsfreyja, starfsmaður leikskóla, f. 28. júlí 1965. Maður hennar Guðjón Vilmar Reynisson.
4. Sigrún Jóelsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1969. Fyrrum maður hennar Halldór Jón Jóhannesson. Sambúðarmaður hennar Baldvin Vilhjálmsson.

Þau Guðjón Vilmar giftu sig 2002, hafa eignast þrjú börn. Þau búa í Reykjanesbæ.

I. Maður Lilju, (28. júlí 2002), er Guðjón Vilmar Reynisson, f. 20. febrúar 1966. Foreldrar hans Reynir Guðjónsson, f. 14. júní 1945, og Margrét Jóhanna Vilmarsdóttir, f. 25. september 1945.
Börn þeirra:
1. Margrét Jóhanna Guðjónsdóttir, f. 2. maí 1989 í Keflavík. Sambúðarmaður hennar Aðalbergur Aðalbergsson.
2. Guðrún Rannveg Guðjónsdóttir, f. 16. júní 1993 í Keflavík. Barnsfaðir hennar Stefán Karl Björnsson. Maður hennar Marius Rebisz.
3. Reynir Guðjónsson, f. 9. desember 1999 í Reykjanesbæ.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.