Gréta Kortsdóttir
Elín Gréta Kortsdóttir kennari fæddist 1. ágúst 1943 í Klömbru u. Eyjafjöllum.
Foreldrar hennar voru Kort Ármann Ingvarsson bóndi, verkamaður, f. 6. janúar 1908, d. 7. apríl 1986, og kona hans Ásta Einarsdóttir frá Reykjadal í Hrunamannahreppi, húsfreyja, f. 7. október 1916, d. 8. júlí 2005.
Börn Ástu og Korts:
1. Guðbjörg Júlía Kortsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 21. október 1936 í Klömbru. Maður hennar Grímur Jóhannesson.
2.Elín Gréta Kortsdóttir kennari í Reykjavík, f. 1. ágúst 1943 í Klömbru. Maður hennar Sigurður Sigurðsson Bogasonar frá Stakkagerði.
Gréta varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1960, nam í Myndlistarskólanum í Rvk 1962-1964, lauk kennaraprófi í Myndlistar- og handíðaskólanum 1970. Hún sótti ýmis námskeið síðar.
Gréta kenndi í Barnaskólanum í Eyjum 1970-1972, Fellaskóla í Rvk frá 1973-1988, í Laugalækjarskóla í Rvk 1988-2003.
Þau Sigurður eru í sambúð, eignuðust ekki börn.
I. Sambúðarmaður Elínar Grétu er Sigurður Sigurðsson frá Stakkagerði, vélvirkjameistari, f. 20. mars 1943.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Elín Gréta.
- Íslendingabók.
- Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.