Valgerður Ólafsdóttir (Hjálmholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. mars 2022 kl. 21:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2022 kl. 21:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Ólafsdóttir frá Hjálmholti fæddist 1. apríl 1899 í Mölshúsum á Álftanesi, Gull. og lést 23. júlí 1976 í Flórída í Bandaríkjunum.
Foreldrar hennar voru Ólafur Stefánsson í Litlabæ og Mölshúsum á Álftanesi, síðar á Ólafsvöllum í Eyjum, f. 13. ágúst 1865 á Hömrum í Grímsnesi, d. 20. apríl 1941, og fyrri kona hans Málfríður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1868 á Álftanesi, d. 19. ágúst 1904.

Börn Ólafs og Málfríðar fyrri konu hans :
1. Ögmundur Ólafsson vélstjóri, útgerðarmaður á Litlalandi, f. 6. júní 1894 í Deildarkoti á Álftanesi, d. 29. september 1995.
2. Margrét Stefanía Ólafsdóttir, f. 24. júlí 1896 í Lambhaga á Álftanesi. Hún var í Reykjavík 1910, fluttist til Noregs.
3. Valgerður Ólafsdóttir, f. 1. apríl 1899 í Mölshúsum, d. 23. júlí 1976 í Flórída.
4. Valdimar Angantýr Ólafsson, f. 17. janúar 1901 á Álftanesi, niðursetningur á Snorrastöðum í Laugardal í Grímsnesi 1910, d. 23. ágúst 1911.
5. Loftur Sumarvin Ólafsson vélstjóri í Reykjavík, f. 24. apríl 1902 í Mölshúsum, d. 23. júní 1966. Hann var fósturbarn í Halakoti á Álftanesi 1910, vinnumaður þar 1920.
6. Andvana stúlka, f. 15. ágúst 1904 í Mölshúsum.
Börn Ólafs og Þorbjargar síðari konu hans:
5. Ólafur Unnfriður Ólafsson, tvíburi, f. 19. júlí 1909, d. 30. september 1927.
6. Andvana drengur, tvíburi, f. 19. júlí 1909.

Valgerður var á sjötta árinu, er móðir hennar lést. Hún var með föður sínum og síðan honum og Þorbjörgu stjúpu sinni, fór með þeim til Seyðisfjarðar 1909, flutti með þeim að Hjálmholti 1912, en fór frá Eyjum 1915, kom til Eskifjarðar 1916, fór til Reykjavíkur 1917, þaðan til Danmerkur og síðan til Bandaríkjanna. Hún bjó síðast í Flórída.
Valgerður lést 1976.

I. Fyrsti maður Valgerðar var Axel Thomsen í Danmörku.
II. Annar maður hennar var Gus P. Schaarup, d. 1979.
III. Þriðji maður Valgerðar var Carl Neuber, f. um 1904.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.