Svala Jónsdóttir (Engey)
Ingunn Svala Jónsdóttir frá Engey, húsfreyja, síðast í Reykjavík fæddist 3. febrúar 1926 og lést 13. mars 1990.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson verkamaður í Engey, f. 14. júní 1887 á Krókatúni í Hvolhreppi, d. 25. september 1951, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. júlí 1885 í Ysta-Koti í Landeyjum, d. 22. september 1972.
Börn Jóns og Sigríðar:
1. Helga Jóna Jónsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 18. september 1917 á Sperðli í Landeyjum, d. 5. mars 1990.
2. Sigurður Jónsson vélstjóri, útgerðarmaður, f. 9. júlí 1919 á Sperðli í Landeyjum, d. 23. desember 2003.
3. Stefán Jónsson rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 15. ágúst 1920 á Sperðli í Landeyjum, d. 28. ágúst 1969.
4. Gísli Svavar Jónsson sjómaður, f. 21. september 1922 á Ofanleiti, fórst með v.b. Ófeigi VE-217 1. mars 1942.
5. Sigurjón Jónsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 21. október 1923 í Eyjum, d. 8. október 1991.
6. Ingunn Svala Jónsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 3. febrúar 1926, d. 13. mars 1990.
7. Guðrún Ísleif Jónsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 13. október 1929, d. 1. janúar 1987.
Svala var með foreldrum sínum í æsku. Hún ól andvana barn 1945. Þau Runólfur giftu sig 1948 og bjuggu í Engey við Faxastíg 23. Þau fluttust til Reykjavíkur og bjuggu í Faxaskjóli 14 um skeið, eignuðust fjögur börn. Þau skildu 1969.
Svala bjó síðast á Austurbrún 6. Hún lést 1990.
Barn hennar:
1. Andvana drengur, f. 25. desember 1945 á Faxastíg 23.
II. Maður Svölu, (6. júní 1948, skildu), var Runólfur Dagbjartsson múrari, f. 21. apríl 1923, d. 19. maí 2008.
Börn þeirra:
1. Sigurjón Ómar Runólfsson, f. 23. desember 1947. Kona hans: Auður Eiríksdóttir.
2. Margrét Runólfsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1949. Maður hennar: Sigurður Rafn Jóhannsson.
3. Dagmar Svala Runólfsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1952. Maður hennar: Guðjón Sigurbergsson.
4. Kristín Helga Runólfsdóttir húsfreyja, f. 17. október 1955. Sambýlismaður hennar: Ari Tryggvason.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.