„Tryggvi Ólafsson (Garðhúsum)“: Munur á milli breytinga
m (Viglundur færði Tryggvi Ólafsson á Tryggvi Ólafsson (Garðhúsum)) |
(Gaf mér leyfi til að setja eina mynd af Tryggva á eldri árum. Þið skammið mig ef ég mátti þetta ekki) |
||
Lína 31: | Lína 31: | ||
Mynd:KG-mannamyndir 16898.jpg | Mynd:KG-mannamyndir 16898.jpg | ||
Mynd:KG-mannamyndir 16899.jpg | Mynd:KG-mannamyndir 16899.jpg | ||
Mynd:Ellert%26Karl%26Tryggvi.jpeg | |||
</gallery> | </gallery> | ||
Útgáfa síðunnar 2. ágúst 2014 kl. 23:23
Tryggvi Ólafsson fæddist 8. ágúst 1911 í Garðhúsum í Vestmannaeyjum og lést 9. apríl 1985. Foreldrar hans voru Anna Vigfúsdóttir og Ólafur Jónsson sem bjuggu í Garðhúsum alla tíð.
Árið 1939 kvæntist Tryggvi Þórhildi Stefánsdóttur, dóttur Stefáns Guðlaugssonar. Bjuggu þau sér heimili við Helgafellsbraut. Þau eignuðust þrjá syni, Ólaf Tryggvason í Vestmannaeyjum, Stefán Þór sem býr í Reykjavík og Sævar sem lést árið 2005. Allir fetuðu þeir í fótspor föður síns og urðu málarar.
Um fermingu fór Tryggvi að stunda sjómennsku, lengst af á Leó með Þorvaldi Guðjónssyni, síðan á Ver með Jóni Guðmundssyni í Miðey sem var aflakóngur 1946.
Einnig vann Tryggvi við verslunarstörf í versluninni Úrval sem stóð við Miðstræti en árið 1947 sneri hann sér alfarið að málarastörfum og varð meistari í þeirri grein.
Tryggvi var einn af fremstu knattspyrnumönnum Íþróttafélagsins Þórs og var hann virkur félagi í því íþróttafélagi.
Eftir gos settust Tryggvi og Þórhildur að í Kópavogi.
Myndir
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1986.
- Kristján Guðlaugsson. Íslenskir málarar. Reykjavík: Málarameistarafélag Reykjavíkur, 1982.