„Ólöf Jónsdóttir (Nýjabæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ólöf Jónsdóttir''' húsfreyja í París fæddist 1855 í Krosssókn í Landeyjum og lést líklega í Vesturheimi.<br> Móðir hennar var [[Sigríður Hjaltadóttir (Nýja...) |
m (Verndaði „Ólöf Jónsdóttir (Nýjabæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 7. júlí 2014 kl. 14:10
Ólöf Jónsdóttir húsfreyja í París fæddist 1855 í Krosssókn í Landeyjum og lést líklega í Vesturheimi.
Móðir hennar var Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818, d. 9. desember 1880.
Móðursystkini Ólafar í Eyjum voru:
1. Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júní 1879.
2. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820.
3. Eyjólfur Hjaltason á Löndum, sjávarbóndi 1870, bókbindari í Kornhól, f. 19. desember 1821.
4. Björn Hjaltason vinnumaður, sjómaður, f. 10. júní 1843, drukknaði 26. mars 1842.
Hálfbræður Sigríðar, synir Gyðríðar og Þorkels Jónssonar síðari manns hennar:
5. Jón Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, tómthúsmaður í Grímshjalli, f. 18. september 1826.
6. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.
Bróðursonur Sigríðar Hjaltadóttur var Þórður Hjaltason á Steinsstöðum.
Ólöf var fósturbarn hjá Kristínu Einarsdóttur húsfreyju í Nýjabæ, síðan vinnukona þar. Hún var húsfreyja í París við fæðingu Þorsteins 1887, en að nýju vinnukona í Nýjabæ við brottför til Vesturheims 1889, en Jón maður hennar fór vestur 1887, en hún var þá ófrísk af Þorsteini.
I. Maður hennar, (1. mars 1885), var Jón Kristinn Arnoddsson, þá vinnumaður í Nýjabæ, síðar búandi í París, f. 12. júlí 1862, d. 1. janúar 1942 Vestanhafs.
Börn þeirra hér:
1. Kristín Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Hólshúsi, f. 24. september 1883, d. 27. maí 1957.
2. Þorsteinn Jónsson, f. 14. desember 1887. Hann fór til Vesturheims með móður sinni 1889.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.