„Daníel Bjarnason (Saurbæ)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 8: | Lína 8: | ||
Daníel var vinnumaður á Bergþórshvoli í V-Landeyjum 1801. Hann var bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1802-1804 og Minni-Borg þar 1804-1810. Hann var síðan í vinnumennsku, var fyrirvinna í Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1816, bóndi þar 1819-1820.
| Daníel var vinnumaður á Bergþórshvoli í V-Landeyjum 1801. Hann var bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1802-1804 og Minni-Borg þar 1804-1810. Hann var síðan í vinnumennsku, var fyrirvinna í Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1816, bóndi þar 1819-1820.

Þau Guðný voru komin til Eyja 1828 og voru tómthúsmenn þar.
| Þau Guðný voru komin til Eyja 1828 og voru tómthúsmenn þar í Saurbæ.

Við manntal 1840 var Daníel fátæklingur í Norðurgarði. Hann var síðustu ár sín hjá Guðbjörgu dóttur sinni á Vilborgarstöðum.

Börn Daníels og Guðnýjar:
| Börn Daníels og Guðnýjar:

Útgáfa síðunnar 27. október 2013 kl. 15:21
Daníel Bjarnason tómthúsmaður í Saurbæ fæddist 1777 í Varmadal á Rangárvöllum og lést 22. apríl 1845 á Vilborgarstöðum.
Faðir hans var Bjarni bóndi og hreppstjóri í Varmadal á Rangárvöllum, f. 1738 í Varmadal, skírður 6. október þ. ár, d. 29. mars 1788 í Litlu-Tungu í Holtum, Þorsteinsson bónda á Sandhólaferju og Varmadal á Rangárvöllum, f. 1703, d. í júní 1766, Hróbjartssonar bónda í Gerðum í Flóa 1703 og 1708, f. 1647, Jónssonar, og konu Hróbjarts, Margrétar húsfreyju, f. 1665, Jónsdóttur.
Móðir Bjarna í Varmadal og fyrri kona Þorsteins var Guðrún húsfreyja, f. 1702, d. í febrúar 1756, Markúsdóttir bónda á Ægissíðu, f. 1654, Þórðarsonar, og konu Markúsar, Gunnvarar húsfreyju, f. 1661, Brynjólfsdóttur.
Móðir Daníels og barnsmóðir Bjarna var Kristín vinnukonu, f. um 1749 í V-Landeyjum, d. 19. mars 1839 í Fljótshlíð, Daníelsdóttir.
Kona Daníels, (22. október 1801), var Guðný Bergþórsdóttir húsfreyja, f. 1770 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, d. 12. desember 1840 í Eyjum.
Daníel var vinnumaður á Bergþórshvoli í V-Landeyjum 1801. Hann var bóndi í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1802-1804 og Minni-Borg þar 1804-1810. Hann var síðan í vinnumennsku, var fyrirvinna í Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1816, bóndi þar 1819-1820.
Þau Guðný voru komin til Eyja 1828 og voru tómthúsmenn þar í Saurbæ.
Við manntal 1840 var Daníel fátæklingur í Norðurgarði. Hann var síðustu ár sín hjá Guðbjörgu dóttur sinni á Vilborgarstöðum.
Börn Daníels og Guðnýjar:
1. Bergþór Daníelsson, f. 1803, d. 9. desember 1804.
2. Sigríður Daníelsdóttir, f. 20. febrúar 1804, d. 29. júlí 1885, vinnukona í Hvammi u. Eyjafjöllum, ógift.
3. Þuríður Daníelsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 7. mars 1806, d. 12. apríl 1841, gift Guðmundi Guðmundssyni.
4. Guðný Daníelsdóttir, f. 6. apríl 1807, d. 3. febrúar 1869, öryrki.
5. Bjarni Daníelsson, f. 1. maí 1808, d. líklega ungur.
6. Jón Daníelsson vinnumaður í Godthaab, f. 27. ágúst 1809, á lífi 1836.
7. Bergur Daníelsson vinnumaður í Drangshlíð, f. 13. febrúar 1811, d. 3. apríl 1832. Bergur var faðir Guðrúnar Bergsdóttur
í Svaðkoti, móður Ingibjargar í Suðurgarði og þeirra systkina.
8. Guðrún Daníelsdóttir vinnukona í Stóru-Hildisey í Landeyjum, f. 18. september 1815, d. 16. júní 1839.
II. Barn Daníels með Kristínu Jónsdóttur vinnukonu á Skeggjastöðum, síðar húsfreyju í Eystra-Fróðholti, skírð 27. september 1772, d. 4. maí 1843,
9. Kristín Daníelsdóttir, f. 10. september 1798, d. 25. janúar 1799.
III. Barnsmóðir Daníels var Þuríður Árnadóttir vinnukona á Skúmsstöðum í V-Landeyjum, f. 1770, d. 25. ágúst 1821.
Barn þeirra var
10. Guðbjörg Daníelsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 28. febrúar 1801, d. 27. desember 1888. Maður hennar var Magnús Ólafsson sjómaður.
Þau voru foreldrar
a) Bergs Magnússonar sjómanns, f. 1837, hrapaði í Dufþekju 23. ágúst 1866.
Dóttir Bergs var Elísabet Bergsdóttir, f. 1857, d. 6. júlí 1928. Hún varð kona Arnbjörns Ögmundssonar í Presthúsum.
Þau voru foreldrar Bergmundar Arnbjörnssonar í Nýborg, Þorbjörns Arnbjörnssonar á Reynivöllum, Ágústu Arnbjörnsdóttur húsfreyju í Hvíld, konu Kristins Jónssonar á Tanganum og Guðbjargar Arnbjörnsdóttur.
b) Ólafs Magnússonar formanns og hagyrðingur, f. 15. apríl 1845, d. 4. október 1927.
IV. Barnsmóðir Daníels var Vilborg Pétursdóttir, þá vinnukona í Dölum, síðar húsfreyja á Löndum, skírð 1. desember 1792, d. 30. mars 1859. Daníel neitaði.
Barnið var
11. Daníel Daníelsson, f. 26. mars 1828, d. 9. apríl 1828.
V. Barnsmóðir Daníels var Elín Guðmundsdóttir húsfreyja í Steinmóðshúsi, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876.
Barn þeirra var
12. Elín Daníelsdóttir, 15. maí 1831, d. 18. maí 1831.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.is.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.