„Ritverk Árna Árnasonar/Sigurjón Sigurðsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''''<big>Kynning.</big>''''' '''Sigurjón Sigurðsson''' formaður, fiskimatsmaður og fisksali frá Brekkuhúsi fæddist 6. mars 1890 og lést 8. júní 1959.<br> Foreldrar han...) |
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Sigurjón Sigurðsson“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 17. ágúst 2013 kl. 14:44
Kynning.
Sigurjón Sigurðsson formaður, fiskimatsmaður og fisksali frá Brekkuhúsi fæddist 6. mars 1890 og lést 8. júní 1959.
Foreldrar hans voru Sigurður Sveinbjörnsson, f. 25. júní 1865, d. 11. júní 1933, og kona hans Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 20. janúar 1863, d. 3. júní 1956.
Sigurjón hóf sjómennsku 14 ára. Hann var skipstjóri á ýmsum bátum frá 1911 og jafnframt útgerðarmaður um skeið.
Hann hætti sjómennsku 1944 eftir farsælan feril.
Síðari árin var hann fiskimatsmaður og fisksali.
Sigurjón var tvíkvæntur:
I. Fyrri kona hans var Kristín Óladóttir húsfreyja, f. 17. mars 1889, d. 1. september 1975. Þau skildu.
Börn Sigurjóns og Kristínar voru:
1. Sigurbjörg húsfreyja, f. 27. desember 1910, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003, ættaður frá Hofsstöðum í Mýrasýslu.
2. Sigurður Óli skipstjóri, f. 24. janúar 1912, d. 16. júní 1981, kvæntur Jóhönnu Kristínu Helgadóttur húsfreyju, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
3. Aðalheiður Sigurjónsdóttir, dó þriggja ára.
4. Jóhanna húsfreyja, f. 21. ágúst 1915, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni frá Núpi undir Eyjafjöllum, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
5. Ragnhildur húsfreyja, f. 16. júlí 1918, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni.
6. Margrét húsfreyja, f. 20. desember 1923, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922.
7. Aðalheiður, f. 16. maí 1926, gift: 1) Antoni Jónssyni, skildu, 2) Gísla Ólafssyni.
II. Síðari kona Sigurjóns var Ingibjörg Högnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1904, d. 3. september 1991.
Börn Sigurjóns og Ingibjargar:
7. Sigurjón, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
8. Marta húsfreyja, f. 5. febrúar 1936.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.
Sigurjón er í hærra lagi, ljóshærður, vel þrekinn og liðlega vaxinn, vel sterkur, snar og léttur í hreyfingum. Hann er kátur og skemmtilegur í viðræðum, en heldur til baka gagnvart fjöldanum.
Veiðimaður er hann ágætur, einn af þeim stóru seinni tíðar veiðimönnum og hefir verið í flestum úteyjum hér og á Heimalandi við alls konar bjargveiði og getið sér hinn besta orðstír. Hann hefir verið við fuglaveiðar frá barnæsku og oft skilað 6-800 stk. dagafla af lunda í hinum ýmsu úteyjum.
Sigurjón er sagður nokkuð geðstór og ráðull, og hefir það ef til vill spillt almennum vinsældum hans meðal úteyjafélaga hans á ýmsum tímum.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Sigurjón Sigurðsson
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Íslendingabók.is.
- Margrét Sigurjónsdóttir.
- Skipstjóra-og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.