Aðalheiður Sigurjónsdóttir (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Aðalheiður Sigurjónsdóttir.

Aðalheiður Sigurjónsdóttir frá Þingeyri, húsfreyja fæddist þar 16. maí 1926 og lést 19. ágúst 2020.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurðsson bátsformaður og síðar fisksali, f. 6. mars 1890 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, dáinn 8. júní 1959, og kona hans Kristín Óladóttir húsfreyja, f. 17. mars 1889 í Sandhúsi í Mjóafirði eystri, d. 1. september 1975.










ctr


Kristín Óladóttir og börn.

Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir (Stella), Ragnhildur Sigurjónsdóttir (Bubba), Sigurður Sigurjónsson''(Siggi, skipstjóri á Freyju), Jóhanna Sigurjónsdóttir, (Hanna).
Fremri röð frá vinstri: Aðalheiður Sigurjónsdóttir (Lalla), frú Kristín, Margrét Sigurjónsdóttir (Maggý). (Blik 1974).


Börn Kristínar og Sigurjóns:
1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1910 í Brekkuhúsi, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003.
2. Sigurður Óli Sigurjónsson skipstjóri, f. 24. janúar 1912 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1981. Kona hans var Jóhanna Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
4. Aðalheiður, dó þriggja ára.
5. Jóhanna Sigurjónsdóttir húsfreyja, kaupkona, f. 21. ágúst 1915 á Mosfelli, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni brunaverði, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1918 í Gvendarhúsi, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni prentara í Reykjavík.
7. Drengur, tvíburi við Ragnhildi, fæddist og dó sama dag.
8. Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1923 í Pálshúsi, d. 21. nóvember 2016, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922, d. 5. febrúar 2021.
9. Aðalheiður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1926 á Þingeyri, d. 19. ágúst 2020, gift: 1) Antoni Jónssyni skipasmið, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009. Þau skildu, 2) Gísla Ólafssyni bifreiðastjóra, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002.
Fóstursonur Kristínar fyrstu ár ævi sinnar var
10. Ingvi Rafn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 31. júlí 1937, sonur Jóhönnu dóttur hennar. Hann kom til móður sinnar, er hún fór að búa.
Börn Sigurjóns og síðari konu hans Ingibjargar Högnadóttur:
11. Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
12. Marta Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1936, d. 26. apríl 2021.

Aðalheiður var með foreldrum sínum á Þingeyri 1926 og 1927, síðan á Grímsstöðum framyfir 1930, er foreldrar hennar skildu og var þar með móður sinni til 1934, og með henni á Auðsstöðum, Brekastíg 15 B 1934, á Einidrangi, Brekastíg 29 1940. Um skeið var hún með móður sinni á Boðaslóð.
Hún bjó með Antoni og Guðrúnu Kristínu á Þingeyri 1945.
Aðalheiður og Anton fluttust til Reykjavíkur 1946. Þau skildu 1948.
Aðalheiður giftist Gísla Ólafssyni 1951, eignaðist með honum tvö börn. Þau bjuggu í Reykjavík.

I. Maður hennar, (24. ágúst 1945, skildu), var Anton Jónsson skipasmiður, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009.
Barn þeirra:
1. Guðrún Kristín Antonsdóttir húsfreyja, kennari, f. 27. október 1945 á Þingeyri.

II. Síðari maður Aðalheiðar (1951), var Gísli Ólafsson bifreiðastjóri hjá Landhelgisgæslunni, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002. Foreldrar hans voru Ólafur Jón Jónasson sjómaður í Stykkishólmi, f. 8. mars 1887 á Innra-Leiti á Skógarströnd, Snæf., d. 29. júlí 1929, og kona hans Ólína Jóhanna Pétursdóttir frá Svefneyjum, húsfreyja, f. 24. ágúst 1887, d. 13. september 1979.
Börn þeirra:
2. Margrét Gísladóttir húsfreyja, lyfjafræðingur, f. 15. desember 1953. Maður hennar er Haukur Halldórsson.
3. Grettir Gíslason framkvæmdastjóri og eigandi Töskuviðgerðarinnar ehf., f. 8. júní 1957. Kona hans er Sigríður Magnúsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Aðalheiður.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 27. janúar 2009. Minning Antons Jónssonar.
  • Morgunblaðið 25. október 2002. Minning Gísla Ólafssonar
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.