Jóhanna Sigurjónsdóttir (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Sigurjónsdóttir frá Þingeyri, húsfreyja, kaupmaður fæddist 21. ágúst 1915 á Mosfelli og lést 28. mars 1989 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurðsson bátsformaður og síðar fisksali, f. 6. mars 1890 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, dáinn 8. júní 1959, og kona hans Kristín Óladóttir húsfreyja, f. 17. mars 1889 í Sandhúsi í Mjóafirði eystri, d. 1. september 1975.


ctr


Kristín Óladóttir og börn.

Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir (Stella), Ragnhildur Sigurjónsdóttir (Bubba), Sigurður Sigurjónsson''(Siggi, skipstjóri á Freyju), Jóhanna Sigurjónsdóttir, (Hanna).
Fremri röð frá vinstri: Aðalheiður Sigurjónsdóttir (Lalla), frú Kristín, Margrét Sigurjónsdóttir (Maggý). (Blik 1974).


Börn Kristínar og Sigurjóns:
1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1910 í Brekkuhúsi, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003.
2. Sigurður Óli Sigurjónsson skipstjóri, f. 24. janúar 1912 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1981. Kona hans var Jóhanna Kristín Helgadóttir, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
4. Aðalheiður, dó þriggja ára.
5. Jóhanna Sigurjónsdóttir húafreyja, kaupkona, f. 21. ágúst 1915 á Mosfelli, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni brunaverði, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1918 í Gvendarhúsi, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni prentara í Reykjavík.
7. Drengur, tvíburi við Ragnhildi, fæddist og dó sama dag.
8. Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1923 í Pálshúsi, d. 21. nóvember 2016, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922.
9. Aðalheiður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1926 á Þingeyri, gift: 1) Antoni Jónssyni skipasmið, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009. Þau skildu, 2) Gísla Ólafssyni bifreiðastjóra, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002.
Fóstursonur Kristínar fyrstu ár ævi sinnar var
10. Ingvi Rafn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 31. júlí 1937, sonur Jóhönnu dóttur hennar. Hann fór til móður sinnar, er hún fór að búa.
Börn Sigurjóns og síðari konu hans Ingibjargar Högnadóttur:
11. Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
12. Marta Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1936.

Jóhanna var með foreldrum sínum í fyrstu. Móðir hennar veiktist af berklum í baki og var Jóhanna í fóstri í Fagradal hjá Kristínu Jónsdóttur og Þorsteini Ólafssyni 1920 og enn við húsvitjun 1925. Hún var síðan með foreldrum sínum á Þingeyri 1926 og 1927 og þá á Grímsstöðum, en þeir skildu upp úr 1930.
Hún var með móður sinni á Grímsstöðum 1933, á Auðsstöðum, Brekastíg 15 B 1934 og með Jóni Agnari á Hásteinsvegi 42 1937.
Jóhanna vann afgreiðslustörf hjá Kaupfélagi Verkamanna, einkum í verslun þess í Brúarhúsi, Vestmannabraut 1, Horninu, sem kallað var.
Hún eignaðist Ingva Rafn Jónsson 1937, giftist Sigurði 1941 og bjó með honum í Valhöll. Þau eignuðust barn í Eyjum, fluttust til Reykjavíkur 1946 og eignuðust þar barn. Hún vann árum saman við afgreiðslustörf. Í yfir 20 ár rak hún verslunina Hlíð í Kópavogi ásamt Guðríði Sigurðardóttur.
Jóhanna lést 1989 og Sigurður 1992.

I. Barnsfaðir Jóhönnu var Jón Agnar Eyjólfsson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 8. janúar 1910, d 2. ágúst 1968. Foreldrar hans voru Eyjólfur Sigurðsson bóndi, síðar vegaverkstjóri á Akranesi, f. 27. mars 1850, d. 6. nóvember 1922, og Hallbera Guðný Magnúsdóttir bústýra, f. 3. nóvember 1868, d. 17. ágúst 1935.
Barn þeirra:
1. Ingvi Rafn Jónsson, f. 31 júlí 1937 á Hásteinsvegi 42.

II. Maður Jóhönnu, (7. júní 1941), var Sigurður Guðmundsson sjómaður, síðan starfsmaður skipafélagsins Jökla, en frá 1963 slökkviliðsmaður á Reykjavíkurflugvelli, f. 12. ágúst 1918 að Núpi u. Eyjafjöllum, d. 15. nóvember 1992.
Börn þeirra:
2. Sigurður Óli Sigurðsson bankaútibússtjóri í Reykjavík, f. 8. september 1941. Kona hans er Guðrún Þórbjarnardóttir.
3. Sigurjón Sigurðsson tannlæknir, f. 20. maí 1949 í Reykjavík. Kona hans er Guðrún Gunnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðrún Þórbjarnardóttir.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 4. apríl 1989. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.